Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæðis­flokksins, verður næsti for­sætis­ráð­herra Ís­lands. Hann til­kynnti fjöl­miðlum um þessar breytingar á fjöl­miðla­fundi í Hörpu rétt í þessu.

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sóknar­flokksins verður fjár­mála­ráð­herra og Inn­viða­ráðu­neytið færist til Vinstri grænna.

Svandís Svavarsdóttir verður innviðaráðherra og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir verður matvælaráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir verður utanríkisráðherra að nýju. Lyklaskipti vara fram á morgun.

Stjórnarsáttmáli er óbreyttur að sögn Bjarna.

Mikilvæg mál sem þarf að klára

Bjarni sagði mikilvægt að endurskipa í ráðherrastóla við þær aðstæður sem hafa komið upp eftir að Katrín Jakobsdóttir baðst lausnar úr embætti á sunnudaginn.

„Við erum með mikilvæg mál sem liggja fyrir þessu þingi sem stutt er eftir af,“ sagði Bjarni.

Á fundinum sagði Bjarni, Sigurður og Guðmundur Ingi að mikilvægasta málið væri að ná tökum á verðbólgunni svo hægt sé að lækka vexti.

Stjórnarandstaðan getur andað léttar

Guðmundur Ingi sagði mikilvægast fyrir Innviðaráðuneytið að klára Borgarlínu og samgöngusáttmálann.

Bjarni sagði þá alla bratta á framhaldið. „Það var auðvitað eftir því tekið að þingið beið og stjórnarandstaðan hafði miklar áhyggjur af því hvernig þetta allt gengi en hún vonandi andar léttar núna,“ sagði Bjarni að lokum.