Umræður um stöðu ÍL-sjóðs standa nú yfir á þingi en Bjarni Benediktsson gerir grein fyrir skýrslu fjármálaráðuneytisins um málið. Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, fór hörðum orðum um kynningu og framsetningu Bjarna um ÍL-sjóðs í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi áður en formleg umræða hófst.

Líkir Bjarna við Liz Truss

„Kreddupólitík hæstvirtrar ríkisstjórnar virðist nú vera að ná hámarki. Hæstvirtur fjármálráðherra fetar nú í fótspor fyrrum forsætisráðherra Breta, Liz Truss, með glannaskap í efnahagsmálum. [Bjarni] heldur blaðamannafund um hvernig hann ætlar að spara þjóðinni fúlgur fjár með að knýja gamla Íbúðalánasjóð í þrot. Álíka vanhugsað og hugmyndir Truss um að hægt sé að endurreisa breska hagkerfið með að ráðast í umfangsmiklar skattalækkanir,“ sagði Kristrún.

„Íslenskir fjármálamarkaðir kaupa ekki þessa hugmynd hæstvirts ráðherra ekki frekar en markaðir keyptu skattalækkanahugmyndir bresku ríkisstjórnarinnar. Enda er þetta enn ein bókhaldsbrellan, tilfærsla á skuld, tilfærsla á pólitísku verkefni sem fór illa, yfir á lífeyrissjóði landsins.

Það er í hæsta máta óbyrgt að bera þessa „vúdú-hagfræði“ á borð fyrir þjóðina. Annað hvort skilur hæstvirtur fjármálaráðherra ekki hvernig einfaldar fjármálaafurðir virka eða að hann er að ljúga að þjóðinni. Ég veit ekki hvort er verra.“

Kristrún sagði að með tillögum Bjarna væri ríkissjóður að víkja sér undan ábyrgð á skuldbindingum opinberrar stofnunar „sem sett var á laggirnar í pólitískum tilgangi með lífeyri þjóðarinnar að veði“. Þá sé lögfræðiálitið sem unnið var fyrir ráðuneytið „engan vegin afdráttarlaust“.

Kristrún skilji ekkert í lögfræðinni í málinu

Bjarni furðaði sig á að Kristrún skyldi opna á umræðuna í fyrirspurnatíma en brást engu að síður við ummælunum. Öfugmæli væri að halda því fram að ríkið ætli ekki að bera ábyrgð á framtíðarskuldbindingum ÍL-sjóðs. Aðeins væri hægt að hafa áhyggjur ef ríkisstjórnin myndi víkja sér undan ábyrgð á málinu sem hægt væri að hafa áhyggjur.

„Þannig að þegar háttvirtur þingmaður sakar mig um að skilja ekki fjármálamarkaði þá ætla ég að halda því fram að háttvirtur þingmaður skilji ekkert í lögfræðinni í þessu máli. Vegna þess að það eina sem ég hef gert á þessum tímapunkti er að vekja athygli á alvarlegri stöðu ÍL-sjóðs sem á ekki fyrir skuldbindingum sínum. Ég vakið athygli á því hvers eðlis ríkisábyrgðin á skuldbindingum Íl-sjóðs.

Ég hef sagt að það væri mitt mat en á endanum ákvörðun Alþingis að við ættum að gera upp sjóðinn á grundvelli þeirra loforða sem gefin voru út á sínum tíma sem felur í sér fullt uppgjör gagnvart öllum kröfuhöfum á grundvelli ríkisábyrgðarinnar með slitum ÍL-sjóðs. Það myndi spara ríkissjóðinum vænta aukna áhættu inn í framtíðina,“ segir Bjarni.

Bjarni vísaði á bug því verulegu tjóni sem lífeyrissjóðir og aðrir kröfuhafar gætu orðið fyrir og sagði að það væri í þeirra höndum að ávaxta það fé sem þeir fá við uppgjör á skuldbindingum ÍL-sjóðs.

Það „ræðst á endanum á næstu 22 árum af því að hvernig þeir spila úr þeim eignum til þeirra ganga með fullu uppgjöri á öllum skuldbindingum ÍL-sjóðs eins og þær standa á uppgjörsdegi. Fáránlegt er að vera með fullyrðingar um það hvernig úr því mun spilast“.

Verið að taka framtíðargreiðsluflæði frá lífeyrissjóðum

Kristrún steig aftur upp í pontu og sagði augljóst að verið sé að reyna að taka framtíðargreiðsluflæði frá lífeyrissjóðum. „Það átta sig allir á því sem skilja fjármálaafurðir sem eru óuppgreiðanlegar með þessari ríkisábyrgð.“

Bjarni svaraði Kristrúnu og sagði að hann væri með þessu máli að mæla fyrir framtíðarkynslóðir landsins „sem eiga ekki skilið að útvíkkum ríkisábyrgð sem var skýrt skilgreind sem einföld ríkisábyrgð – engin sjálfskuldarábyrgð“.

„Það sem [Kristrún] er hins vegar að segja er þetta: Við skulum leysa úr þessu máli með því að sjá sjúklingnum blæða hægt og rólega út. Láta okkur það engu varða þó að í hverjum mánuði vaxi skuldbinding framtíðarskattgreiðenda um 1,5 milljarða eða á hverju ári 18 milljarða. Við þurfum að strjúka fjármálaöflunum í landinu, kröfuhöfunum. Fjármálamarkaðir verða ávallt að vera í forgangi,“ sagði Bjarni.