Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands tilkynnti í gær að það hefði veitt fjártæknifyrirtækinu Blikk hugbúnaðarþjónustu hf. starfsleyfi á grundvelli laga um greiðsluþjónustu frá árinu 2021. Blikk er fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem fær þetta tiltekna starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu.

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands tilkynnti í gær að það hefði veitt fjártæknifyrirtækinu Blikk hugbúnaðarþjónustu hf. starfsleyfi á grundvelli laga um greiðsluþjónustu frá árinu 2021. Blikk er fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem fær þetta tiltekna starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu.

Leyfið gerir Blikk kleift að vera annars vegar milligönguaðili um greiðslur milli aðila, svokallaður greiðsluvirkjandi og hins vegar veitir leyfið Blikk aðgang að reikningsupplýsingum einstaklinga og fyrirtækja til þriðja aðila sem geta þróað virðisaukandi þjónustur byggða á þessum gögnum. Um bæði tilvikin, þ.e. greiðsluvirkjun og reikningsupplýsingaþjónustu, gilda strangar kröfur um upplýst samþykki og sannvottun þess sem gögnin varða, þ.e. þá einstaklinga og fyrirtækin sem gögnin tilheyra.

Þróað smágreiðslulausn síðustu tvö árin

Blikk hefur í tæp tvö ár þróað smágreiðslulausn þar sem greiðsla færist beint af bankareikningi kaupanda yfir á bankareikning seljanda án aðkomu hefðbundinna greiðslukortafyrirtækja.

„Blikk greiðsluþjónustu er kominn valkostur sem getur orðið veruleg búbót fyrir samfélagið í heild þar sem byggt er á skilvirkari og hagkvæmari tæknilausn en þeirri sem upphaflega var búin til við gjörólíkar aðstæður á miðri síðustu öld. Greiðsluþjónusta Blikk er ekki einungis hagkvæmari kostur en þeir sem nú eru notaðir heldur býður tæknin einnig upp á nýja möguleika til hagsbóta fyrir neytendur og söluaðila,“ segir í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í tilefni af starfsleyfinu.

Blikk hugbúnaðarþjónusta hf. er að öllu leyti í eigu InfoCapital ehf., og starfsmanna félagsins. InfoCapital er fjárfestingarfélag stofnað árið 2009 af Reyni Grétarssyni, stofnanda Creditinfo Group.

„Á undanförnum árum og áratugum höfum við séð mikla breytingu á neytendavenjum þegar kemur að því hvernig greitt er fyrir vörur og þjónustu. Þessar breytingar hafa haft í för með sér mikla hagsbót fyrir samfélagið og í dag er það svo að nánast öll velta á smávörumarkaði er í gegnum greiðslulausnir sem eru á einn eða annan hátt byggðar ofan á kerfi kortafyrirtækja eins og MasterCard og VISA,“ segir, Bjarni Gaukur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Blikk hugbúnaðarþjónustu hf.

„Gallinn við núverandi kerfi er sá að milliliðirnir eru ansi margir og fer fjölgandi fremur en fækkandi með tilheyrandi kostnaði. Það skýtur skökku við að þegar maður er í verslun og borgar með síma eða korti þá fer greiðslan á mikið ferðalag með fjölmörgum stoppistöðvum, jafnvel út fyrir landsteinana, og tilheyrandi kostnaði þar til hún skilar sér loks inn á reikning söluaðilans.

Með tilkomu tækninýjunga og þeirra breytinga sem innleiddar voru í lög árið 2021 hafa opnast möguleikar til þess að gera greiðslulausnir sem eru tengdar beint við bankareikninga fremur en kortum og á því byggjum við nýju greiðslulausnina okkar. Við köllum það einfaldlega að blikka. Blikk greiðslur fara beint á milli aðila, eru ódýrari en kortagreiðslur og berast söluaðila í rauntíma eins og ætti að þykja eðlilegt í nútímasamfélagi. Allt sem heitir uppgjör heyrir því sögunni til. Neytendur geta fengið vörukvittunina í Blikk appið og ég sé fyrir mér að þetta geti hjálpað þeim að halda utan um neyslu sína sem og þróun vöruverðs. Þetta gerir söluaðilum kleift að þjónusta viðskiptavini sína á persónulegri hátt en áður hefur þekkst, t.d. til sníða tilboð að hverjum og einum, virkja afslætti vildarklúbba sjálfkrafa og svo mætti lengi telja.

Umræða um þjóðaröryggi tengt greiðslumiðlun hefur farið hátt í samfélaginu upp á síðkastið en með tilkomu Blikk er kominn greiðslulausn sem er í senn óháð og innlend . Tæknileg högun Blikk er þannig háttað að hægt er að tryggja að innlend greiðslulausn geti ávallt verið virk jafnvel þó nettenging við útlönd rofni eða vegna annarra erlendra áhrifa.”