Björgólfur Jóhannsson, einn af eigendum Kjálkaness, eins stærsta einkafjárfestis Festi, og fyrrum forstjóri Icelandair, dró framboð sitt í endurskoðunarnefnd til baka á hluthafafundi félagsins sem nú stendur yfir. Hann fetar þar með í fótspor Þórðar Más Jóhannessonar sem dró framboð sitt í stjórn Festi til baka í þrumuræðu þar sem hann gagnrýndi vinnubrögð Brúar Lífeyrissjóðs og LSR harðlega.
Eins og Viðskiptablaðið sagði frá fyrir skömmu yfirgaf Þórður Már, ásamt fleiri einkafjárfestum, hluthafafundinn að ræðunni lokinni.
Selja einkafjárfestarnir sig út?
Svo virðist því vera sem að gjá hafi myndast milli einkafjárfesta og fyrrnefndra lífeyrissjóða. LSR er stærsti hluthafi í Festi með 11,32% hlut og Brú er sá fjórði stærsti með 8,65% hlut. Þrír einkafjárfestar eru á meðal 20 stærstu hluthafa félagsins. Stormtré, fjárfestingafélag Hreggviðs Jónssonar fer með 2,33% hlut og Brekka Retail, fjárfestingafélag Þórðar Más, fer með tæplega 2% hlut. Þá fer Kjálkanes með 1,5% hlut.
Samanlagt eiga félögin þrjú því tæplega 6% hlut í Festi. Ljóst er af ofangreindu að kurr er meðal einkafjárfesta og spurning hvort þeir sjái sæng sína upp reidda og ákveði að selja hluti sína.