Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu, reksturs og þjónustu Bláa lónsins, segir í samtali við Viðskiptablaðið að búið sé að tilkynna um lokun Bláa lónsins á ný í kjölfar eldgossins sem hófst í gærkvöldi.
„Við tilkynntum okkar gestum, sem áttu bókað hjá okkur í dag, strax í gærkvöldi að það yrði eðlilega lokað í dag og nú í morgun tilkynntum við um áframhaldandi lokun til 28. desember. Við metum stöðuna dag frá degi en til að tryggja upplýsingaflæði til gesta sem eiga bókað hjá okkur næstu daga höfum við þennan háttinn á.“
Helga segir að stjórnendur muni meta stöðuna næstu daga og eru í góðu sambandi við viðbragðsaðila.
Bláa lónið var opnað á ný síðastliðinn sunnudag, fimm vikum eftir lokun vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Veitingastaðurinn Lava og heilsulindir lónsins voru einnig opnaðar fyrir daggesti en hótelin Silica og Retreat ásamt veitingastaðnum Moss voru þó enn lokuð.
Opnun lónsins var þó háð sömu takmörkunum og önnur starfsemi í Grindavík þ.e. að starfsemin væri innan tímarammans frá sjö á morgnanna til klukkan níu á kvöldin. Lónið var því opið gestum á milli ellefu að morgni til átta að kvöldi en morgnarnir nýttir í þrif og annan undirbúning.
Aðspurð um viðbrögð gesta við ákvörðun lónsins segir Helga að viðskiptavinir séu sumir hverjir vonsviknir en að menn geri sér grein fyrir stöðunni. „Við erum núna einfaldlega að vega og meta og fylgjumst með.“