Sigurður Þórðarson sendi mál Lindarhvols ehf. til embættis ríkissaksóknara til efnislegrar meðferðar á dögunum. Í erindi sínu til ríkissaksóknara, sem Viðskiptablaðið hefur undir höndum, vísar hann sérstaklega á kafla sem fjallar um framkvæmd á sölu á eignarhlut ríkisins í Klakka.
Á meðal þeirra eigna sem Lindarhvoll kom í verð var 17,8% hlutur í Klakka, sem upphaflega hét Exista, auk nauðasamningskröfu á Klakka.
Hæsta tilboðið frá BLM fjárfestingu, í eigu vogunarsjóðsins Burlington Loan Management, var að fjárhæð 505 milljónir króna og var því tekið. Gengið var frá kaupsamningi 1. nóvember 2016 en hluturinn í Klakka var afhentur í byrjun febrúar 2017.
Í samningi fjármálaráðherra og Lindarhvols segir að félagið skuli taka hæsta tilboði í hverri sölu „enda sé það yfir því lágmarksverði sem félagið hefur sett sér fyrirfram“. Ef þörf krefji geti félagið leitað ráðgjafar við verðmöt. Ríkisendurskoðun óskaði í nóvember 2017 eftir rökstuðningi og upplýsingum um hvert ásett lágmarksverð Lindarhvols á eignarhlut í Klakka hefði verið.
Í svari stjórnar Lindarhvols, dagsettu 2. janúar 2018, kemur fram að ekkert ásett lágmarksverð hafi verið sett á eignina þegar sala hennar var auglýst. Viðmið stjórnar um lágmarksverð við söluna var virði eignarinnar við framsal samkvæmt viðauka við viðkomandi stöðugleikasamning, að teknu tilliti til greiðsluflæðis af eigninni. Fyrir vikið var lágmarksverð vegna eignarinnar sem slitabú Kaupþings afhenti 308,2 milljónir króna.
Í greinargerð Sigurðar um stöðu verkefnisins í maí 2018, sem leit dagsins ljós á fimmtudaginn, segir að það „blasi við“ miðað við forsendur sem hann tilgreinir að lágmarksverð á eignarhlut ríkisins hafi verið 881 milljón króna. Sigurður rökstyður það út frá eiginfjárstöðu Klakka og reiknuðu virði eignarhlutar Klakka í dótturfélaginu Lýsingu, sem heitir nú Lykill, í hálfsársuppgjöri Klakka árið 2016 sem lá fyrir. Þá kemur jafnframt fram að Ríkisendurskoðun hafi gert verðmat á hlut stöðugleikaframlaganna í eignarhlut Klakka ehf. í Lýsingu og hafði árshlutareikning þess um mitt ár 2016 til hliðsjónar.
„Ef sú leiðrétting er ennfremur gerð að fyrir hafi legið í október 2016 að staða Lýsingar hf. var að batna til muna og því einnig leiðrétt fyrir niðurfærslu eignarhlutarins að fjárhæð 1.589 m.kr. og hún bakfærð eins og gert var í ársuppgjöri fyrirtækisins fyrir árið 2016 [...] þá hækkar verðmatið á eignarhluta ríkissjóðs í Klakka ehf. um 71. m.kr. og verður 952. m.kr.,“ segir í greinargerðinni.
BLM hafi hagnast um 1,3 milljarða á kaupunum
Hin framangreinda sala á 17,8% hlut í Klakka og tengdri nauðasamningskröfu hafði áður verið í eigu slitabús Kaupþings og var framseld til Lindarhvols sem stöðugleikaeign. Ríkissjóður átti einnig 11,7% hlut í Klakka og tengda kröfu í slitabúi Glitnis en sá eignarhlutur taldist skilyrt fjársópseign en það fól í sér að eignarhald, umsýsla og ráðstöfun hennar var áfram hjá slitabúinu.
Við framsal stöðugleikaeigna slitabúa Kaupþings og Glitnis nam eignarhluti þeirra í Klakka samtals 29,4%. Sala beggja eignarhlutanna fór fram í september og október 2016. Tilboðum frá BLM fjárfestingu var tekið í báðum útboðunum og nam söluverð 1.155 milljónum króna. Endanlegt söluverð nam 902 milljónum króna þegar greiðslur frá Klakka til ríkissjóðs fram að afhendingardegi voru dregnar frá.
Ríkisendurskoðun gerði verðmat á hlut stöðugleikaframlaganna í eignarhluta Klakka ehf. í Lykli hf. (áður Lýsingu) og hafði árshlutareikning Lýsingar um mitt ár 2016 til hliðsjónar.
„Samkvæmt niðurstöðu þess verðmats má áætla að heildarvirði beggja eignanna gæti hafa numið um 2,2 ma.kr. Miðað við áætlað verðmat að frádregnu nettósöluandverði myndi hagnaður BLM fjárfestingar ehf. nema um 1,3 ma.kr. Þá voru greiðslur sem fóru til kaupanda á tímabilinu febrúar 2017 til og með janúar 2018 um 532 m.kr. sem eru 60% af kaupverðinu,“ segir í greinargerðinni.

Fréttin er hluti af lengri umfjöllun um greinargerð Sigurðar og Lindarhvolsmálið í Viðskiptablaði vikunnar.