Endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtækin Deloitte og EY á Íslandi tilkynntu í vikunni um að viðræður stæðu yfir um sameiningu á starfsemi fyrirtækjanna. Gangi samruninn eftir mun sameinað fyrirtæki starfa undir nafni Deloitte og yrði því ekki hluti af al‏þjóðlegu neti Ernst & Young.

EY á Íslandi var stofnað í núverandi mynd árið 2002 við sameiningu tveggja endurskoðunarstofa – Endurskoðendur ehf. á Þórsgötu 26 og Endurskoðunarstofan Skólavörðustíg 12.

„Það eru blendnar tilfinningar eins og gengur og gerist,“ segir Guðjón Norðfjörð, forstjóri EY á Íslandi, spurður um viðbrögð við mögulegu brotthvarfi EY af Íslandsmarkaði. „Við urðum tuttugu ára 1. desember síðastliðinn og það má segja að það slær gult hjarta í okkur. Sem betur fer er fólk þó jákvætt gagnvart þessu.“

Guðjón segir tækifæri með fyrirhuguðum samruna liggja í öflugri ráðgjöf sem hefur orðið veigameiri þáttur í starfsemi stórra endurskoðunarfyrirtækja um gjörvallan heim, ekki síst vegna tækniframfara. Sameinað fyrirtæki gæti t.d. veitt meiri samkeppni við erlend ráðgjafarfyrirtæki sem taka að sér verkefni hér á landi.

„Það eru stór ráðgjafarverkefni í farvatninu, ‏þ.m.t. innviðaverkefni, þar sem þörf er á öflugri einingum. Ef af þessu verður, þá gætu slík verkefni orðið mjög spennandi fyrir okkur,“ segir Guðjón. Hann nefnir einnig að sjálfbærni sé að verða veigameiri þáttur í starfsemi íslenskra fyrirtækja og að ráðgjöf á því sviði muni sennilega vaxa hratt á komandi árum.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í gær. Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér.