Reykjavíkurborg mun á næstu vikum hefja undirbúning við að draga á lánið allt að 50 milljónir evra, eða allt að 7,5 milljarða króna, af 100 milljóna evra láninu sem borgin tryggði sér nýlega frá Þróunarbanka Evrópuráðsins (CEB).
Þetta kemur fram í tilkynningu Reykjavíkurborgar en fjármála- og áhættustýringarsvið borgarinnar fékk í dag heimild borgarráðs til að draga á lánið.
Borgarráð samþykkti í lok febrúar að heimila borgarstjóra að sækja um lán að fjárhæð 100 milljónir evra til Þróunarbanka Evrópuráðsins. Borgarstjórn samþykkti lánsfjármögnunina í byrjun júní og þann 6. júní undirrituðu Einar Þorsteinsson borgarstjóri og Carlo Monticelli bankastjóri CEB lánssamninginn.
Borgin gaf það út að lánsfjármögnuninni yrði varið í viðamikið viðhald og uppbyggingu í húsnæði grunnskóla, leikskóla og frístundar.
„Reykjavíkurborg hóf umfangsmikið viðhaldsátak í skólahúsnæði borgarinnar á árinu 2022 en gert er ráð fyrir að það muni ná yfir næstu fimm ár samkvæmt fjárhagsáætlun til ársins 2028,“ segir í tilkynningu sem borgin sendi frá sér í febrúar.
„Á síðustu árum hefur Reykjavíkurborg að mestu fjármagnað fjárfestingar með útgáfu skuldabréfa á innlendum markaði en unnið hefur verið að því að fjölga valkostum í fjármögnun og yrði fjármögnun frá CEB liður í því. CEB lánar eingöngu í evrum en unnið er að því að skoða varnir gagnvart gengisáhrifum í samstarfi við innlenda banka.“