Bakarískeðjan Brikk hefur tekið yfir fyrrverandi húsnæði pizzastaðarins Spaðans á Dalvegi í Kópavogi, auk allra tækja og tóla sem húsnæðinu fylgir. Þar hefur Brikk opnað fjórða útibúið, en nú með take-away þjónustu. Þá hefur öll vinnsla, framleiðsla og heildsala hjá Brikk færst yfir í nýja húsnæðið.

„Með nýja staðnum getum við aukið framleiðsluna okkar töluvert,“ segir Einar Hjörvar Benediktsson, einn þriggja eigenda Brikks.

Þeir Einar, Oddur Smári Rafnsson og Davíð Magnússon opnuðu fyrsta kaffihúsið árið 2017 í Hafnarfirði. Oddur segir að upprunalega hafi hugmyndin verið sú að framleiða veitingar fyrir veitingastaði, hótel og önnur fyrirtæki.

„Bakaríið sem við opnuðum í Hafnarfirði varð hins vegar svo vinsælt að við réðum ekki við meira. Árið 2019 finnum við hins vegar húsnæði á Völlunum undir framleiðsluna og gátum þá loks keyrt á þennan markað. Þá byrjum við að framleiða ýmiss konar vörur fyrir aðra aðila, til dæmis fyrir vini okkar í Lagardére sem reka Nord og Mathúsið á Keflavíkurflugvelli.“

Einar segir að nú sé unnið að því að fínstilla viðskiptamódel félagsins. Stór þáttur í því sé aukin heildsala og verður nýja útibúið á Dalveginum miðpunktur í þeim efnum.

„Við erum meðal annars að fara framleiða veitingar fyrir veitingastaðinn Bakað upp á Leifsstöð, erum að framleiða ýmsar sérvörur fyrir vini okkar í Te og Kaffi, seljum pizzadeig og súrdeigsbrauð til veitingastaða og þannig mætti lengi telja.“

Nánar er fjallað um Brikk í Viðskiptablaðinu, sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.