Íslandsbanki hefur ráðið Brynjólf Bjarnason í stöðu forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar bankans. Hann kemur aftur til liðs við Íslandsbanka eftir að hafa sinnt starfi framkvæmdastjóra hjá Laufinu.

Brynjólfur var viðskiptastjóri hjá fyrirtækjum og fjárfestum hjá Íslandsbanka á árunum 2018 til 2023 og þar áður starfaði hann í sjö ár hjá slitastjórn Kaupþings.

Brynjólfur er viðskiptafræðingur (BSc) frá Háskóla Íslands með áherslu á stjórnun og markaðsfræði. Hann hefur einnig lokið stjórnendanámi frá Háskólanum í Reykjavík og MBA námi, Master of Business Administration, frá sama skóla. Þá hefur Brynjólfur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og félagasamtaka.

„Við bjóðum Brynjólf hjartanlega velkominn og fögnum liðsinni hans, enda er hann framúrskarandi leiðtogi og keppnismaður sem hefur á að byggja mikilli reynslu frá fyrri störfum á fjármálamarkaði, svo sem af kaupum, sölu og endurskipulagningu fyrirtækja, stýringu lána- og eignasafna, samningagerð og fleiru. Við hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs við hann,“ segir Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fyrirtækja og fjárfesta.