Trausti Þórmundsson hefur verið ráðinn forstjóri Controlant og mun hann ásamt Gísla Herjólfssyni, forstjóra og meðstofnanda, leiða íslenska hátæknifyrirtækið. Félagið verður þannig leitt af tveimur forstjórum, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.
Samhliða tilkynnir Controlant um hagræðingaaðgerðar. Starfsfólk Controlant fækkar um 50 þvert á öll svið félagsins. „Til þess að auka skilvirkni, mun millistjórnendum einnig fækka.“
Eftir breytinguna starfa 230 hjá félaginu á fimm starfstöðvum á Íslandi, í Danmörku, Hollandi, Póllandi, og Bandaríkjunum.
Controlant hefur gengið í gegnum krefjandi tíma að undanförnu, sem endurspeglast m.a. í að tekjuspár félagsins hafa lækkað talsvert. Félagið ákvað í lok ágúst að fækka starfsfólki um þriðjung, niður í 290 starfsmenn. Þar áður hafði félagið sagt upp 80 manns í nóvember 2023.
„Controlant hefur undanfarin misseri unnið að því að laga starfsemina að markaðsaðstæðum, og ræðst nú í næsta áfanga á þeirri vegferð. Ýmsar breytingar verða gerðar í samræmi við áherslur í stefnu félagsins sem miða að því að skerpa á markaðsstöðu, og einfalda og bæta rekstur,“ segir í tilkynningu félagsins.
„Controlant mun leggja áherslu á meiri snerpu í nýsköpun og stefnumótandi samstarf í líftæknigeiranum til þess að geta þjónustað enn breiðari hóp viðskiptavina innan aðfangakeðju lyfja með rauntímavöktunarlausnum.“
Breytingar i framkvæmdastjórn
Trausti Þórmundarson, sem tekur við hlutverki forstjóra ásamt Gísla, er meðstofnandi Controlant og hefur setið í stjórn síðan 2007. Fram kemur að hann muni stíga úr stjórn Controlant í síðasta lagi á aðalfundi félagsins 2025.
Trausti hefur reynslu sem leiðtogi í tæknigeiranum í Bandaríkjunum og á Íslandi. Sem framkvæmdastjóri hjá Conexant, Synaptics, og Google hefur hann leitt alþjóðleg tækniteymi við þróun og markaðssetningu á nýjum tæknilausnum.
„Ég hef alla tíð haft mikla trú á sýn Controlant um að umbylta aðfangakeðju lyfja, tryggja öryggi sjúklinga og útrýma sóun við hvert skref og tækifærin sem búa í tækni félagsins við að gera þá sýn að veruleika. Ég hlakka til þess að taka við nýju hlutverki og leiða félagið áfram til árangurs í nánu og traustu samstarfi við Gísla og öflugan hóp starfsfólks,“ segir Trausti.
Áslaug Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og mun stýra innleiðingu nýrra viðskiptavina, þjónustumiðstöðvum á Íslandi, í Hollandi og í Bandaríkjunum og rekstri alþjóðlegra viðskiptavina. Áslaug gekk til liðs við Controlant árið 2022 og sinnti nýlegast hlutverki sviðstjóra rekstrarsviðs.
Erlingur Brynjúlfsson snýr aftur í hlutverk framkvæmdastjóra tæknisviðs en hann var tímabundið framkvæmdastjóri stefnumótunar. Hann mun stýra tæknisviði Controlant með áherslu á styrkja enn frekar tæknilegar stoðir félagsins. Erlingur er meðstofnandi Controlant og hefur verið hjá félaginu frá upphafi og byggt upp tæknilega innviði þess.
„Við höldum áfram að taka skref til þess að mæta tækifærum og áskorunum á markaði og sækja fram. Markvissar hagræðingaraðgerðir hafa verið liður í því aðlaga starfsemina að markaðsaðstæðum og það reynist nauðsynlegt að draga enn frekar úr kostnaði með því að fækka starfsfólki. Ég vil þakka þeim sem við kveðjum í dag fyrir verðmætt framlag til vegferðar félagsins,“ segir Gísli Herjólfsson, forstjóri og meðstofnandi Controlant.
„Á sama tíma gerum við breytingar á framkvæmdastjórn til þess að styðja við framtíðaráform félagsins. Ég býð Trausta, Áslaugu og Erling velkomin í ný hlutverk og hlakka til þess að starfa náið saman með Trausta sem öðrum og jöfnum forstjóra Controlant, en sem stofnendur félagsins höfum við átt farsælt samstarf til margra ára. Þekking og reynsla Áslaugar eru verðmæt viðbót við stjórnendateymið og munu nýtast vel á vegferðinni framundan. Erlingur snýr aftur á sinn heimavöll og mun leika lykilhlutverk í að efla tæknilegt forskot félagsins.“
„Það er okkur ánægja að ráða Trausta sem forstjóra við hlið Gísla í nýju skipuriti. Trausti hefur farið með mikilvægt hlutverk í stjórnartíð sinni og við erum þess fullviss að Gísli og Trausti muni veita félaginu sterka forystu. Saman munu þeir sækja fram á ört vaxandi markaði og halda áfram að byggja upp stoðir félagsins. Breytingarnar á framkvæmdastjórn styðja við framkvæmd á stefnu félagsins þar sem framúrskarandi þjónusta til viðskiptavina og markviss vöruþróun eru í brennidepli, með það markmið að auka tekjuvöxt á komandi árum,“ segir Søren Skou, stjórnarformaður Controlant.