Costco á Íslandi hagnaðist um 440 milljónir króna á síðasta rekstrarári, sem náði yfir tímabilið 1. september til 31. ágúst 2022og jókst hagnaður um tæplega 47 milljónir króna frá fyrra rekstrarári.
Rekstrarhagnaður nam 45 milljónum króna og dróst saman um 145 milljónir króna frá fyrra rekstrarári. Jákvæður gengismunur upp á 356 milljónir stóð að mestu undir hagnaði rekstrarársins.
Tekjur verslunarinnar námu tæplega 22 milljörðum króna og jukust um 149 milljónir króna milli rekstrarára, eða 0,7%.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast fréttina í heild sinni hér.