Stærstu fyrir­tæki Dan­merkur hafa á undan­förnum árum lagt mikla áherslu á fjöl­breytni, jafn­rétti og inn­gildingu (e. DEI – Diversity, Equity, Inclu­sion) í starfs­manna­hópum sínum, sam­kvæmt danska við­skipta­miðlinum Børsen.

Nú, þegar nýkjörinn for­seti Bandaríkjanna, Donald Trump, hefur lýst yfir stríði gegn „vók kúltur“ stendur þessi stefna frammi fyrir nýjum áskorunum.

Trump hefur undir­strikað mikilvægi þess að fyrir­tæki ein­blíni á fjár­hags­legan árangur, en hann hefur jafn­framt hafnað stefnum sem hann telur „neyða félags­fræði­legar hug­myndir um kynþátt og kyn inn í alla þætti opin­bers starfsemis og einkalífs.“

Í kjölfar em­bættistöku hans hefur verið gefin út til­skipun frá Hvíta húsinu um að einka­fyrir­tæki verði hvött til að leggja niður DEI-áætlanir sínar.

Í Bandaríkjunum hafa stór­fyrir­tæki á borð við Wal­mart, McDonald's og Meta annaðhvort skorið niður eða hætt al­farið við DEI-verk­efni sín á undan­förnum mánuðum.

Að sögn Bodil Dam, sér­fræðings í jafn­réttis­málum hjá Kon­gres­sen.com, er þróunin ekki ein­göngu rakin til endur­komu Trump heldur einnig til hreyfingar gegn „Vók-kúltúr” í ríkjum eins og Flórída.

Dönsk fyrir­tæki halda sig til hlés

Þegar Børsen reyndi að ná svörum frá dönskum fyrir­tækjum með starf­semi í Bandaríkjunum, á borð við Maersk, Rambøll og Dan­foss, kusu þau að tjá sig ekki um DEI-áætlanir sínar.

„Þetta er viðkvæmt mál á þessum tíma­punkti,“ segir full­trúi frá einu fyrir­tækjanna, en bætti við að fyrir­tækin kjósi frekar að starfa á bak við tjöldin fremur en að taka opin­bera af­stöðu.

Að sögn Andreas Gylling Æbelø, ráðgjafa í stjórnun og sér­fræðings í fjöl­breytni og inn­gildingu, segist hann skilja þennan varfærna tón.

„Fyrir­tæki vilja forðast að reita Trump og stuðnings­menn hans til reiði. Þetta er svipuð nálgun og við sjáum í stjórn­málum varðandi Græn­landsmálin,“ segir hann

„Fyrir­tæki verða fljót­lega dæmd af því hvort þau haldi í DEI-verk­efni sín eða gefist upp þegar and­stæðingarnir þrýsta á,“ segir Æbelø.