Eimskip hefur tekið í rekstur nýtt leiguskip, Star Comet, sem gerir félaginu kleift að bæta fjórða skipinu við á Norður-Ameríku leiðinni til að mæta eftirspurn vestur um haf. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef flutningafélagsins.
Félagið rekur í dag þrjú skip á þessari leið, tvö sem eru 900 gámaeiningar og eitt sem er 700 gámaeiningar á vikulegri þjónustu.
Fjórða skipið, sem er 700 gámaeiningar, mun bætast við þjónustuna um miðjan nóvember og verður áætlun stillt þannig upp að bæði 700 gámaeiningaskipin sigla í sömu viku með áætlaða brottför frá Reykjavík á þriðjudögum og föstudögum.
„Við erum ánægð að geta mætt þeirri miklu eftirspurn sem við finnum fyrir eftir flutningum á Norður Ameríku leiðinni okkar með því að bæta við fjórða skipinu. Þær breytingar sem við gerðum á siglingakerfinu okkar á síðasta ári þar sem við styttum flutningstímann frá Færeyjum og Íslandi til Norður Ameríku hafa reynst vel og opnað ný tækifæri t.d. fyrir flutning á ferskum laxi yfir hafið á umhverfisvænni hátt en með flugi,“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips.
Fram kemur að í vikunni hafi komið upp bilun í leiguskipinu EF Ava og gert er ráð fyrir að viðgerð muni taka rúmar tvær vikur. Nýja leiguskipið, Star Comet, er þegar komið í þjónustu Eimskips og mun það skip nýtast til að brúa bilið þar til viðgerð er lokið.
![](http://vb.overcastcdn.com/images/119964.width-1160.jpg)