Ljósleiðarinn, dótturfélag Orkuveitunnar, skilaði 731 milljón króna tapi árið 2024, samanborið við 570 milljóna króna tap árið áður. Rekstrartekjur jukust aftur á móti um 1,3 milljarða milli ára og námu 5,7 milljörðum en rekstrarkostnaður jókst á sama tíma um milljarð og nam tæplega 2,7 milljörðum.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, jókst sömuleiðis milli ára og nam 3 milljörðum í fyrra, samanborið við 2,7 milljarða árið 2023. Rekstrarhagnaður, EBIT, var á pari við fyrra ár og nam einum milljarði.

Þetta kemur fram í ársreikningi Ljósleiðarans sem birtur var í dag. Fram kemur í uppgjörstilkynningu að aukningu á nettótapi megi einkum rekja til umfangsmikillar uppbyggingar og hærri fjármagnskostnaðar.

„Það er mikilvægt að hafa í huga að félagið hefur aldrei verið sterkara að innan en nú, enda hafa framkvæmdir og fjárfestingar lagt grunn að öruggari og hraðvirkari tengingum fyrir landsmenn. Við sjáum mjög jákvæð merki um að þessi varfærna en kraftmikla nálgun muni skila arðbærum rekstri til lengri tíma,“ segir Einar Þórarinsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans, í uppgjörstilkynningu.

Í tilkynningunni kemur sömuleiðis fram að ný fjármögnun auki sveigjanleika en Ljósleiðarinn tryggði sér á dögunum lánsfjármögnun, m.a. frá Norræna fjárfestingarbankanum, að upphæð 4 milljarðar króna til sjö ára. Er slíkri endurskipulagningu ætlað að styrkja fjármagnsskipan Ljósleiðarans og stuðla að lægri fjármagnskostnaði.

„Með þessum lánasamningi eflum við rekstrarlegan styrk og leggjum grunn að enn hraðari vexti. Með öflugum innviðum, TíuGíg-tækninni og hagkvæmari fjármögnun erum við sannfærð um að festa okkur enn frekar í sessi sem burðarás á íslenskum fjarskiptamarkaði,“ segir Einar.

Hagræðing í stað hlutafjáraukningar

Fyrir ári síðan tilkynnti Ljósleiðarinn að félagið hefði dregið úr fjárfestingum þar til niðurstaða fengist í hlutafjáraukningu, sem unnið hafi verið að í rúm tvö ár. Heimild til hlutafjáraukningar rann út í lok síðasta árs. Í nýjustu uppgjörstilkynningu segir Einar að áhugi fjárfesta á félaginu hafi verið mikill en að svo stöddu sé ekki gert ráð fyrir sölu hlutafjár.

„Við höfum valið að hagræða í rekstrinum og fjármagna framkvæmdir með skilvirkari hætti. Ef réttar aðstæður skapast í framtíðinni, erum við reiðubúin að skoða sölu hlutafjár eða aðrar leiðir til að styrkja félagið enn frekar,“ segir Einar. 

Jákvæð þróun í rekstrarhagnaði, veltufé og fjölda tenginga gefi Ljósleiðaranum mikið svigrúm til að auka þjónustu og sækja enn frekar fram

„Árið 2024 var mikilvægur áfangi fyrir Ljósleiðarann. Við höfum byggt upp innviði sem skila sér í sterkari stöðu og auknum tekjum. Þrátt fyrir tap höfum við aldrei verið í sterkari rekstrarstöðu og sjáum bjarta framtíð fram undan,“ segir Einar Þórarinsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans.

Sterkur rekstrargrundvöllur

Á árinu hafi áhersla verið lögð á viðhald og uppfærslur á grunnkerfinu, samkeyrslu innviða frá Sýn og fjölgun tenginga um land allt. Ljósleiðarinn stefni á að bæta afkastagetu og upplifun viðskiptavina með áframhaldandi þróun fjarskiptakerfa sinna.

„Við sjáum skýrt að viðskiptavinir treysta á stöðugleika og gæði þjónustunnar. Með því að halda áfram að þróa þjónustu okkar og innleiða nýjustu tæknilausnir getum við einbeitt okkur að því að veita landsmönnum allt sem þeir þurfa til stafræns lífs og framtíðar,“ segir Einar. 

Félagið leggi áherslu á öflugt samstarf við sveitarfélög og fjarskiptafyrirtæki til að tryggja fjarskiptaöryggi um land allt.

„Við höfum sterkan rekstrargrundvöll og gríðarlega góðan grunn til að halda áfram að vaxa. Komandi ár verða spennandi, og við höfum rétta fólkið, tæknina og fjármögnunina til að tryggja áframhaldandi árangur,“ segir Einar að lokum.