Hafrannsóknastofnun leggur til að humarveiðar verði ekki heimilaðar árin 2022 og 2023 í samræmi við varúðarsjónarmið. Jafnframt er lagt til að veiðar með fiskibotnvörpu verði áfram bannaðar á afmörkuðum svæðum í Breiðamerkurdjúpi, Hornafjarðardjúpi og Lónsdjúpi til verndar humri.Þetta kemur fram í frétt stofnunarinnar.

Afli á sóknareiningu í ár var sá minnsti frá upphafi og hefur lækkað samfellt frá hámarkinu árið 2007. Stofnstærð humars í stofnmælingunni 2021 hefur lækkað um 27% frá árinu 2016, en tekið er fram að stofnmæling með núverandi fyrirkomulagi talninga á humarholum hófst þegar stofninn var þegar í mikilli lægð.

Þéttleiki humarholna við Ísland árið 2021 var metinn 0.066 holur á hvern fermetra sem er sagt með því lægsta sem þekkist meðal þeirra humarstofna sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) veitir ráðgjöf fyrir.

„Fyrirliggjandi gögn benda til að nýliðun sé í sögulegu lágmarki og að árgangar frá 2005 séu mjög litlir. Verði ekki breyting þar á má búast við áframhaldandi minnkun stofnsins,“ segir í tilkynningu Hagrannsóknastofnunar.