Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, segir fátt skipta jafn miklu máli núna og að verðbólga hjaðni og vextir lækki. Það tekst hins vegar ekki nema jafnvægi náist á húsnæðismarkaði.
„Húsnæðismál eru því eitt stærsta hagsmunamál heimilanna. Kjörnir fulltrúar eiga að láta sig það varða, enda er það hlutverk þeirra að standa vörð um grunninnviði samfélagsins, hvort sem er með uppbyggingu á grunn- og leikskólum, sundlaugum, íþróttamannvirkjum eða húsnæði til að mæta þörfum íbúa,“ skrifar Ásdís í aðsendri grein á Vísi.
Ásdís segir að þrátt fyrir að öll gögn bendi til þess að íbúðaskortur á höfuðborgarsvæðinu sé enn að aukast, jafnvel hraðar en áður, eru kjörnir fulltrúar í meirihluta í borginni og samflokksmenn þeirra á þinginu sem halda því enn fram að vandinn sé auðleystur og varla til staðar yfir höfuð.
„Það liggur þó fyrir að það þarf að byggja 4-5 þúsund nýjar íbúðir á ári á höfuðborgarsvæðinu. Raunin er þó sú að byggðar hafa verið ríflega 1.280 nýjar íbúðir á síðustu fimmtán árum. Því miður hafa endurtekin áform um metnaðarfulla íbúðauppbyggingu ekki orðið að veruleika. Ungt barnafólk með meðaltekjur á ekki möguleika á að eignast þak yfir höfuðið, fólk á miðjum aldri nær ekki að stækka við sig og eldra fólk situr fast í of stórum eignum því úrræði sem henta þeim eru ekki í boði. Þetta eru aðstæður sem enginn vill sjá,“ skrifar Ásdís.
Ásdís bendir að brostnar forsendur fyrir vaxtarmörkum höfuðborgarsvæðisins, sem samþykkt voru árið 2015.
Þegar vaxtamörkin voru sett var gert ráð fyrir að árleg fólksfjölgun yrði 1,1% en raunin hefur verið fjölgun upp á 1,9% að meðaltali á ári frá 2015. Fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu síðustu níu ár hefur því verið sem nemur 17 þúsund íbúum umfram það sem gert var ráð fyrir.
Ásdís bendir á að hægt sé að byggja 56 þúsund íbúðir innan þessara marka á höfuðborgarsvæðinu. En inn í þeirri tölu eru þó um 7.500 íbúðir á Reykjavíkurflugvelli sem ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort á að víkja og þá hvert.
Til að mæta vaxandi íbúðaþörf á höfuðborgarsvæðinu þarf Kópavogur að byggja 15 þúsund íbúðir á næstu 15 árum. Innan núverandi vaxtarmarka getur Kópavogur einungis byggt 4.500 íbúðir fram til ársins 2040.
Ásdís segir þetta sorglegt, en staðreynd, þar sem Kópavogur hefur burði til að vaxa og eflast sem sveitarfélag byggt á sterkum tekjugrunni sveitarfélagsins.
„Þrátt fyrir ofangreindar staðreyndir hefur formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar fullyrt að nægar lóðir séu innan vaxtamarka, að borgin ætli að halda fast í þéttingastefnu sína og hefur engan áhuga að endurskoða vaxtamörkin þannig að sveitarfélög eins og Kópavogur, sem vill stækka og byggja meira á stærra svæði utan vaxtamarka, geti fylgt því eftir,“ skrifar Ásdís.
Hún segir það sé auðvelt að blása í í hástemmdar glærukynningar um umfangsmikla uppbyggingu á næstu árum, en staðreyndin sé sú að þær ganga sjaldnast eftir.
Máli sínu til stuðnings bendir hún á rammasamkomulag sem Reykjavíkurborg skrifaði undir á árinu 2022 um að byggja árlega tvö þúsund íbúðir á næstu fimm árum. Á árinu 2023 voru 858 íbúðir byggðar, eða um 43% af áætlun. Íbúðir í Reykjavík í ár verða 779.
„Það er engum greiði gerður að afvegaleiða umræðuna af pólitískt kjörnum fulltrúum og telja kjósendum trú um að vandi húsnæðismarkaðar sé ekki framboðsvandi. Vandinn er til staðar, framboðsskortur á höfuðborgarsvæðinu blasir við og heimili finna fyrir því dag frá degi í formi hærri vaxta. Því viljum við breyta og köllum eftir því að önnur sveitarfélög leggi okkur lið í því að bæta undir hagsæld og lífskjör heimila á höfuðborgarsvæðinu.