Auglýsingastofan ENNEMM hefur gert samstarfssamning við MIT DesignX sem er alþjóðleg deild innan Massachusetts Institute of Technology (MIT) háskólans í Boston.

Deildin sérhæfir sig í „Design Futures“ sem snýst um nýja og þverfaglega hugsun í mörkun og stefnumótun, nýsköpun í frumkvöðlafræði og rannsóknir á virkni samfélagsáhrifa til framtíðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Aðild að MIT DesignX gerir ENNEMM kleift að bjóða viðskiptavinum stóreflda þjónustu á sviði stefnumótunar og mörkunar fyrir bæði vörumerki og fyrirtæki.

Auglýsingastofan ENNEMM hefur gert samstarfssamning við MIT DesignX sem er alþjóðleg deild innan Massachusetts Institute of Technology (MIT) háskólans í Boston.

Deildin sérhæfir sig í „Design Futures“ sem snýst um nýja og þverfaglega hugsun í mörkun og stefnumótun, nýsköpun í frumkvöðlafræði og rannsóknir á virkni samfélagsáhrifa til framtíðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Aðild að MIT DesignX gerir ENNEMM kleift að bjóða viðskiptavinum stóreflda þjónustu á sviði stefnumótunar og mörkunar fyrir bæði vörumerki og fyrirtæki.

Svafa Grönfeldt, prófessor við MIT, mun styðja starfsfólk stofunnar við innleiðingu og staðfærslu aðferðafræðinnar ásamt öðrum sérfræðingum frá MIT DesignX.

Í þessu felst tvenns konar ávinningur fyrir viðskiptavini: mörkun og staðfæring vörumerkja, og stefnumótun fyrirtækja.

„Með nálgun ENNEMM og MIT DesignX dýpkar fræðilegur grundvöllur mörkunar- og staðfæringarvinnu fyrir vörumerki sem leiðir til enn árangursríkara markaðsstarfs. Tekið verður tillit til fleiri þátta en áður hefur tíðkast og í vinnustofum með viðskiptavinum verður bæði byggt á sögulegum gögnum og skapandi innsýn í þróun markaðsaðstæðna fram í tímann. Þetta skapar vörumerkjum ómetanlegt forskot á síkvikum og breytilegum markaði.“

„Viðskiptavinum býðst einnig þjónusta á heimsmælikvarða við stefnumótun eftir aðferðum MIT DesignX sem er þróuð í samvinnu við ENNEMM til að mæta þörfum íslenskra fyrirtækja. Í stefnumótunarvinnunni eru tölfræðigögn og skapandi hugsun leidd saman til að gera ráð fyrir ólíkum sviðsmyndum framtíðar.

Markmiðið er að stefna fyrirtækja verði í kjölfarið nægilega sveigjanleg til að þau geti aðlagað sig breytingum með áhrifaríkari hætti, búið sig undir fjölbreyttar sviðsmyndir framtíðar og hagað áætlunum, uppbyggingu og innra skipulagi með tilliti til þeirra.“

Boðið verður upp á að halda vinnustofur bæði hérlendis og í höfuðstöðvum MIT DesignX í Boston þar sem geta skapast dýrmæt tengsl við margt af fremsta fagfólki heims á þessu sviði.

„Það er einstaklega ánægjulegt að taka þetta skref með ENNEMM og flytja þá þekkingu og reynslu sem við búum að í MIT DesignX hingað til Íslands. Við vitum að íslenska markaðssamfélagið er bæði móttækilegt og tilbúið að tileinka sér öflugar nýjungar á þessu sviði enda þurfa íslensk fyrirtæki jafnan að takast á við örari og meiri breytingar en víðast hvar.

Það er þeim því mikilvægt að búa sig vel undir ólíkar sviðsmyndir og ráða yfir þekkingu og aðferðum til að bæði bregaðst við og móta þá framtíðarmöguleika sem gerir þeim kleift að ná árangri við ólík skilyrði“, segir Svafa Grönfeldt, prófessor við MIT DesignX.

„Við hjá ENNEMM höfum alla tíð lagt mikla áherslu á traustan grundvöll í markaðsstarfi og viljum ævinlega vinna þétt með okkar viðskiptavinum að stefnumótun og mörkun. Með samstarfinu við MIT DesignX getum við boðið enn dýpri og verðmætari mörkunarvinnu sem gerir fyrirtækin sterkari og tilbúnari að mæta breyttum markaðsforsendum og gerir þannig alla markaðs- og auglýsingavinnunna árangursríkari og arðbærari til langs tíma“, segir Jón Sæmundsson, framkvæmdastjóri ENNEMM.