Hvassahraun er í 100% eigu félagsins Sauðafells sf. Hugi Ármannsson, gjaldkeri Sauðafells, segir að félagið hafi verið stofnað árið 2004 af félagsmönnum í Fjáreigendafélagi Reykjavíkur utan um eignarhald á Hvassahrauni, en upphaflegir stofnendur séu nú flestir dánir drottni sínum.
Fyrir vikið sé Sauðafell sf. nú í eigu erfingja þessara manna, og 107 manns í heildina í eigendahópnum.
Fjáreigendafélag Reykjavíkur var stofnað 2. desember 1927 af sauðfjárbændum í Reykjavík. Félagið var stofnað til að tryggja beitiland fyrir sauðfjárbændur í Reykjavík, en íbúum borgarinnar þótti oft hvimleitt þegar fé sótti í garða, að því er haft er eftir Ólafi R. Dýrmundssyni í viðtali í Breiðholtsblaðinu í desember 2007.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .