Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hafa sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að ríkisstjórnin beitti 71. grein þingskapalaga til að takmarka umræður um veiðigjaldafrumvarpið.

„Vandséð er hvað það er sem veldur því að stjórnvöld eru svo einbeitt í því að skaða hundruð fyrirtækja í sjávarútvegi, stór sem smá, og þar með hag þúsunda sem byggja afkomu sína að meira eða minna leyti á sjávarútvegi. Fyrir því finnast hvorki sanngjörn né efnahagsleg rök,“ segir í yfirlýsingunni.

Ekki vilji til að ræða álitamál

SFS segja að ekki hafi reynst vilji til að ræða álitamál vegna frumvarpsins um verulega hækkun veiðigjalda allt frá því að það ver lagt fram „þrátt fyrir að ítrekað hafi verið bent á galla, ranga útreikninga og rangar forsendur“.

„Áhrifamat hefur ekki enn verið unnið og lítill tími var gefinn til umsagna. Svo virðist sem ekki hafi staðið til að ræða málið efnislega, hvað þá ítarlega.

Málið hefur verið keyrt áfram á órökstuddum yfirlýsingum um að stórhækkun á veiðigjaldi muni ekki hafa nein áhrif á rekstur fyrirtækja. Það er rangt. SFS hafa bent á það og boðuð hækkun er þegar farin að hafa neikvæð áhrif. Þá er aðferðafræði sú sem boðuð er í frumvarpinu meingölluð enda hafa stjórnvöld ítrekað þurft að leiðrétta „leiðréttinguna“.“

Allra tap framundan

Í yfirlýsingunni sem Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna, og Gunnþór Ingvason, formaður SFS, undirrita segir að boðuð hækkun muni draga verulega úr samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs.

„Fyrirséð er að hún muni einnig stórauka líkurnar á því að íslenskur fiskur verði í auknum mæli fluttur óunninn úr landi og mikilvæg verðmætasköpun þar með. Þegar ríkið tekur til muna stærri skerf af afkomu fyrirtækja mun eðli máls samkvæmt draga úr fjárfestingum í búnaði, tækni og nýsköpun. Fram undan er því allra tap vegna vanhugsaðrar hækkunar.“

Þau segja sjávarútvegurinn ekki skorast undan því að greiða eðlilega skatta og gjöld. En þegar stefnan sé að taka meira en 70% af hagnaði fiskveiða vegna hærra veiðigjalds, fyrir utan önnur gjöld, þá sé einboðið að eitthvað verði undan að láta.

„Fyrir fyrirtæki í erlendri samkeppni er ekki valkostur að velta kostnaðarhækkunum heima fyrir út í verð vöru. Fjöldi fyrirtækja í sjávarútvegi stendur því frammi fyrir erfiðum ákvörðunum á næstu misserum. Það má vona að þau stjórnvöld sem settu leikreglurnar hafi þá skilning á þeim sársauka sem þær kunna að valda.“