Bandaríski fjárfestirinn Michael Jenkins hefur verið umsvifamikill á fasteignamarkaði undanfarna mánuði og í dag á hann 23 íbúðir ásamt Kirkjuhvoli, Kaaberhúsinu og hlut í Sætúni 4 og 10.

Nafn bandaríska fjárfestisins Michael Jenkins kom fyrst fram í kringum stofnum helgarblaðsins Fréttatímans þar sem hann lánaði til rekstrarins. Síðan þá hefur hann verið umsvifamikill kaupandi á fasteignum í gegnum félagið Þórsgarð sem er 50% í eigu hans en framkvæmdastjórar félagsins skipta með sér hinum 50%, þær Valdís Fjölnisdóttir, með 25% hlut og Eygló Rós Agnarsdóttir, með 25% hlut. Samtals nema fjárfestingar hans undanfarið meira en milljarði íslenskra króna. Valdís segir áhuga á frekari fjárfestingum en vill ekki gefa upp hversu mikið svigrúm þau hafi til fjárfestinga. Sífellt sé verið að skoða ný tækifæri en áherslurnar hafi færst frá íbúðarhúsnæði yfir í atvinnuhúsnæði undanfarið þar sem þau telja að meiri tækifæri séu þar.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun, fimmtudag. Meðal annars efnis í blaði morgundagsins er:

  • Bankar andvígir uppstokkun á fiskveiðikerfinu
  • Vafi á rekstrarhæfi Olís
  • Fjárhagsstaða Kvikmyndaskólans
  • Telur yfirvöld búa til einokunarstöðu
  • Hörð átök í Vinnslustöðinni
  • Úttekt: Kíkt í kristalkúlu Seðlabankans
  • Óttast ræðuhöld meira en dauðann
  • Dægurmenning: Sala leikhúskorta fer vel af stað
  • Sport & peningar: Wenger hagstýrir Arsenal
  • Viðtal við Guðrúnu Rögnu Garðarsdóttur, framkvæmdastjóra Atlantsolíu
  • Forstjóri Standard & Poor's stóð ekki af sér storminn