Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur farið þess á leit við íslensk stjórnvöld að hagnaðardrifin starfsemi Sorpu verði færð í hlutafélag til að tryggja að tekjuskattur sé greiddur af starfseminni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.

Í tilkynningunni segir að ESA hafi í kjölfar kvörtunar verið með til meðferðar mál er varðar meinta ólögmæta ríkisaðstoð til Sorpu í formi undanþágu frá tekjuskatti. Sorpa bjóði upp á fjölbreytta þjónustu. Auk þess sem að sinna meðhöndlun á heimilisúrgangi þá reki Sorpa stórar móttöku-, förgunar- og endurvinnslustöðvar fyrir fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Vegna stöðu sinnar sem samvinnufélag í eigu sveitarfélaga þá sé Sorpa undanþegið greiðslu tekjuskatts og telur kvartandi það fela í sér röskun á samkeppni.

Í ákvörðun ESA kemur fram að kvartandi hafi óskað eftir því að njóta nafnleyndar og því ekki ljóst hvort að umkvörtunaraðilinn sé samkeppnisaðili Sorpu, þó leiða megi líkur að því að svo sé.

Árið 2023 upplýsti ESA íslensk stjórnvöld um bráðabirgðaniðurstöðu sína að undanþága Sorpu frá tekjuskatti fæli í sér „viðvarandi aðstoð“ þar sem ráðstöfunin hefði verið í gildi frá því fyrir gildistöku EES-samningsins.

Eftirlitsstofnunin komst að þeirri bráðabirgðaniðurstöðu að umrædd ríkisaðstoð samrýmdist ekki lengur EES-samningnum og því bæri að afnema hana. Þar sem tekjuskattsundanþágan telst viðvarandi aðstoð þurfa íslensk stjórnvöld ekki að endurheimta aðstoð sem veitt hefur verið áður.

„Íslensk stjórnvöld féllust á röksemdir ESA og hafa í kjölfarið rætt mögulegar lausnir við ESA. Á grundvelli þeirra úrræða sem íslensk stjórnvald hafa borið undir ESA hefur ESA í ákvörðuninni í dag lagt til nokkrar aðgerðir, þar á meðal að hagnaðardrifin starfsemi Sorpu færist yfir í hlutafélag sem ber tekjuskatt. Það myndi stuðla að því að tryggja jöfn samkeppnisskilyrði og að farið sé að EES-rétti,“ segir í tilkynningu ESA.

Íslensk stjórnvöld hafi nú einn mánuð til að tilkynna ESA hvort þau samþykki umræddar aðgerðir. Ef íslensk stjórnvöld fallist ekki á tillögurnar geti ESA hafið formlega rannsókn á málinu. Verði aðgerðirnar samþykktar þurfi Ísland að hrinda þeim í framkvæmd fyrir 1. janúar 2027.