SFV11 Holding ehf., eignarhaldsfélag þýska félagsins Baader um Skagann 3X Holding, móðurfélag Skagans 3X, færðu virði eignarhlutar í Skaganum 3X Holding niður í núll árið 2022. Þetta kemur fram í ársreikningi SFV 11 Holding fyrir árið 2022 en það ár keypti félagið 40% hlut í Skaganum 3X Holding. Fyrir átti félagið 60% eignarhlut.

Til samanburðar nam bókfært virði 60% hlutar félagsins í Skaganum 3X Holding ríflega 1,1 milljarði króna í lok árs 2021. Þetta varð til þess að eignir félagsins voru einungis metnar á 66 milljónir í lok árs 2022, samanborið við ríflega 1,3 milljarða árið 2021.

Í ársreikningnum kemur jafnframt fram að í árslok 2022 hafi eigið fé Skagans 3X Holding verið neikvætt um tæplega 2,4 milljarða króna og að tap ársins 2022 hafi numið tæplega 1,7 milljörðum. Krafa SFV11 Holding á hendur Skagans 3X Holding var færð niður um sem nemur neikvæðu eigin fé.

Nánar er fjallað um málið í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta nálgast fréttina í heild hér.