Flugfélagið Play flutti 138.155 farþega í október 2024, samanborið við 154.479 farþega í október í fyrra, sem samsvarar 10,6 % samdrætti milli ára. Play birti farþegatölur í morgun.
„Þessi þróun er í takt við áætlun Play um að draga úr framboði sínu á tengiflugi yfir Atlantshafið, og sjást merki þess í farþegatölum fyrir októbermánuð.“
Sætanýting 85,3%
Sætanýting Play í október var 85,3%, samanborið við 83% í október 2023. Stundvísi flugfélagsins var 91,4% í liðnum október, samanborið við 85,8% í október í fyrra.
Af þeim sem ferðuðust með Play í október voru 33,4% á leið frá Íslandi, 39,1% voru á leið til Íslands og 27,5% voru tengifarþegar (VIA).
Play segist halda áfram að bæta við sig markaðshlutdeild á heimamarkaði. Farþegum sem flugu með Play frá Íslandi fjölgaði um 5% á milli ára, úr 43.872 í október í fyrra í 46.143 í október í ár. Sömuleiðis fjölgaði farþegum um 3% sem flugu með Play til Íslands, úr 52.368 í október 2023 í 54.018 í október 2024.
„Play hefur aukið sætaframboð á sólarlandaáfangastöðum í Suður-Evrópu um 17% en frammistaða þeirra markaða hefur engu að síður haldið sér með mikilli eftirspurn.
Þróun á einingatekjum var jákvæð í liðnum september, samanborið við september í fyrra. Er það í fyrsta sinn síðan í vor sem einingatekjurnar eru hærri en í samsvarandi mánuði í fyrra. Þessi þróun hélt áfram í október og eru horfurnar fyrir það sem eftir lifir árs og inn í það næsta jákvæðar.“
„Við erum þegar farin að sjá jákvæð áhrif þeirrar ákvörðunar okkar að leggja meiri áherslu á sólarlandaáfangastaði í Suður-Evrópu. Annan mánuðinn í röð eru einingatekjur hærri samanborið við sama mánuð 2023 og þrátt fyrir að framboðið hafi verið aukið þá hefur það ekki komið niður á frammistöðu þeirra áfangastaða. Við settum met í sætanýtingu í októbermánuði og horfurnar út árið og inn í næsta ár eru jákvæðar,“ segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play.
„Stundvísi okkar í októbermánuði var framúrskarandi sem gerir Play enn eina ferðina að stundvísasta flugfélaginu með brottfarir frá Keflavíkurflugvelli. Þetta er afrakstur þeirrar gríðarlegu vinnu sem samstarfsfólk mitt hjá Play skilar á hverjum degi til að tryggja farþegum okkar öruggt og áreiðanlegt ferðalag.”
Play hóf miðasölu á áætlunarferðum til Antalya í Tyrklandi í október. Fyrsta flugið til Antalya verður farið 15. apríl 2025 og verður flogið einu sinni í viku fram til júní. Áætlunin verður síðan tekin aftur upp í september og flogið fram í nóvember. Play fór í sitt fyrsta flug til Marrakesh í Marokkó í október, sem er í fyrsta sinn sem áætlunarflug er flogið frá Íslandi til Afríku. Þá fór Play einnig í sín fyrstu flug til Madeira og Cardiff í október.
Play tilkynnti einnig um að flugfélagið easyJet hefði bæst við lista þeirra flugfélaga sem hægt er að bóka tengiflug með í gegnum Dohop. Þar með bætast 350 borgartengingar við það úrval sem farþegum Play stendur til boða.