Í haust fóru Höskuldur Gunnlaugsson, Guðjón Pétur Lýðsson og Ívar F. Sturluson af stað með fyrirtækið Skjálausnir, sem eins og nafnið gefur til kynna sérhæfir sig í skjálausnum fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Að sögn eigendanna þjónustar fyrirtækið aðila sem eru í leit að skjálausnum til lengri eða skemmri tíma.

„Það er t.d. vinsælt hjá fyrirtækjum að leigja af okkur upplýsingaskjái til lengri tíma. Þau geta þannig náð að miðla sínum upplýsingum og staðbundnu markaðs- og samskiptaskilaboðum til sinna kúnna, án þess að þurfa sjálf að leggja út fyrir miklum kostnaði á skjábúnaði. Að auki losna þau við höfuðverkinn sem getur fylgt hugbúnaðarvinnu í kringum skjáina. Sömuleiðis hefur orðið mikil aukning í því að fyrirtæki og einstaklingar leigi af okkur skjái í skemmri tíma fyrir einstaka viðburði. Þetta eru viðburðir á borð við stórar sýningar í Hörpunni og allt niður í einkasamkvæmi,“ segir Höskuldur.

„Við erum einnig að selja fyrirtækjum skjái og getum sérsniðið skjálausnir sem henta þeirra þörfum. Það er mikil gróska í framleiðslu á frábærum skjáum og við sáum að það var í raun enginn sem var að sinna þessum markaði að einhverju viti,“ bætir Guðjón Pétur við.

Auglýsingaskjáir fyrir gangandi umferð

Að auki hafa Skjálausnir byggt upp auglýsinganet sem er umhverfismiðill (e. out of home advertising). Í dag samanstendur auglýsingavettvangurinn af 29 skjástöndum sem komið hefur verið fyrir í mörgum af stærstu íþróttamannvirkjum höfuðborgarsvæðisins.

„Heimsóknafjöldinn, sem sagt gangandi umferð framhjá þessum skjástöndum, er í dag norðan við 10 milljónir á ársgrundvelli. Með þessu erum við að styrkja umhverfismiðlalandslagið á Íslandi. Við stefnum á að vera leiðandi auglýsingavettvangur fyrir gangandi vegfarendur,“ segir Höskuldur.

Ívar bendir á að umhverfismiðlalandslagið á Íslandi hafi einkennst af stórum auglýsingaskjáum sem staðsett eru við fjölfarnar umferðargötur og auglýsingum á strætóskýlum. „Ýmsar sniðugar lausnir eru oft lengi að skila sér til Íslands en víða erlendis hafa skjálausnir sem beint er að gangandi umferð tíðkast um árabil. Við sáum því tækifæri í að einblína á þennan hluta.“

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast fréttina í heild hér.