Fasteignamat hækkar að meðaltali um 9,2% milli ára, samkvæmt tilkynningu HMS. Meðalhækkun fasteignamats íbúða nemur 10,2%, á meðan fasteignamat sumarhúsa hækkar um 11,5% og fasteignamat atvinnueigna hækkar um 4,8%.
HMS reiknar fasteignamt árlega og birtir í lok maímánaðar. Hægt er að fletta upp fasteignamati einstakra fasteigna hér.
Stofnunin segir að mikil eftirspurn hafi verið á íbúðamarkaði í nágrannasveitarfélögum Grindavíkur á síðasta ári. Þannig hafi fasteignamat á Suðurnesjum hækkað umfram landsmeðaltal.
Líkt og í fyrra hefur HMS hins vegar ákveðið að halda fasteignamati í Grindavíkurbæ óbreyttu á milli ára, þar sem óvissuástand ríkir og engin markaðsvirkni hefur átt sér stað í sveitarfélaginu.
Fasteignamat hækkar líka umfram landsmeðaltal á Norðurlandi, en þar hefur virði atvinnu- og sumarhúsaeigna hækkað töluvert.
Endurskoða aðferðafræðina
Aðferðarfræðin við útreikning fasteignamats er sambærileg þeirri sem notuð hefur verið síðustu ár eða frá því að HMS tók við málaflokknum árið 2022. Hún byggir beint eða óbeint á kaupverði sambærilegra fasteigna.
Matsaðferðir eru mismunandi eftir tegundum fasteignanna, en flestar fasteignir flokkast sem íbúðareignir, sumarhús eða atvinnueignir. Fyrir íbúðareignir og sumarhús er nær einungis horft til kaupsamninga, en hjá atvinnueignum eru leigusamningar einnig hafðir til hliðsjónar þegar markaðsvirði þeirra er metið.
Á næstu 12 mánuðum hyggst HMS leggja sérstaka áherslu á endurskoðun á aðferðum við gerð fasteignamats atvinnueigna með það að markmiði að útreikningurinn sé gangsærri og að fasteignamatið endurspegli betur markaðsvirði. Matsaðferð atvinnueigna var síðast endurskoðuð árið 2014.
Kynna niðurstöðurnar
HMS mun kynna helstu niðurstöður úr fyrirhuguðu fasteignamati fyrir árið 2026 á opnum fundi í Borgartúni 21 sem hefst kl. 10 í dag.
Á fundinum mun PwC einnig kynna skýrslu um fyrirkomulag fasteignamats og fasteignagjalda á Íslandi og í samanburðarlöndum.
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs mun einnig halda erindi á fundinum um tækifæri og áskoranir sveitarfélaga.