Íslenskir stjórnmálaflokkar fengu samtals úthlutað tæplega 10 milljörðum króna úr ríkissjóði, á verðlagi dagsins í dag, á tímabilinu 2010-2024. Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur verið stærsti flokkur landsins á tímabilinu, er sá flokkur sem hefur fengið hæsta úthlutun úr ríkissjóði á tímabilinu, eða alls rúmlega 2,4 milljarða á verðlagi dagsins í dag.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið úthlutað 53% meira en Vinstri græn, sem hafa fengið næsthæstu úthlutunina á tímabilinu, eða alls tæplega 1,6 milljarða. Fast á hæla Vinstri grænna koma Samfylkingin, með 1,5 milljarða króna, og Framsóknarflokkurinn, með rétt tæplega 1,5 milljarða. Aðrir flokkar sem nú sitja á þingi hafa fengið nokkuð lægri úthlutanir. Píratar hafa fengið 718 milljónir króna, Miðflokkurinn 579 milljónir, Viðreisn 536 milljónir og Flokkur fólksins 524 milljónir.

Þá hefur Sósíalistaflokkurinn fengið 84 milljóna króna framlag á yfirstandandi kjörtímabili þrátt fyrir að hafa ekki náð manni inn á þing í síðustu alþingiskosningum, þar sem flokkurinn var með yfir 2,5% atkvæða.

Árið 2022 fékk flokkurinn rúmlega 31 milljón úr ríkissjóði á núverandi verðlagi, tæplega 27 milljónir árið 2023 og á þessu ári rúmlega 25 milljónir króna.

Aðrir flokkar sem fallið hafa af þingi fengu einnig úthlutanir á tímabilinu 2010-2024. Borgarahreyfingin fékk úthlutað 151 milljón og Björt framtíð 138 milljónir. Loks fékk Dögun 40 milljónir og Flokkur heimilanna 39 milljónum.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.