Fernando Costa hefur verið ráðinn forstjóri álversins Alcoa Fjarðaáls. Hann tekur við stöðunni af Smára Kristinssyni sem hefur gegnt forstjórastarfinu tímabundið eftir að Einar Þorsteinsson lét af störfum fyrr á þessu ári, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. Smári fer á sama tíma aftur í starf framkvæmdastjóra framleiðslu.

Fernando er Brasilíumaður sem hefur gegnt margvíslegum störfum hjá Alcoa síðustu tvo áratugi. Hann hóf störf í Alumar álverinu í Brasilíu árið 2002 og stýrði þar m.a. ferlaþróun og rekstri kerskála. Árið 2015 flutti hann til Bandaríkjanna þar sem hann var síðast svæðisstjóri Viðskiptakerfis Alcoa (e. Alcoa Business System) í Norður Ameríku með aðsetur í Pittsburgh.

Fernando er með MBA gráðu frá Fundacao Getulio Vargas í Brasilíu og Executive MBA gráðu frá Háskólanum í Pittsburgh.

Fernando mun setjast að á Reyðarfirði ásamt eiginkonu sinni og tveimur sonum þeirra en dóttirin heldur áfram háskólanámi í Bandaríkjunum.

„Fernando sagði á fundi með starfsmönnum Alcoa Fjarðaáls að fjölskyldan hlakki til að takast á við þessar miklu breytingar og líti á flutninginn sem stórt tækifæri. Fernando sagðist vilja vera hvetjandi leiðtogi sem geri öðrum kleift að gera sitt besta,“ segir í tilkynningunni.

Einar Þorsteinsson lét af störfum sem forstjóri Alcoa Fjarðaáls fyrr á þessu ári en hann hafði gegnt stöðunni frá 1. desember 2021.
© Aðsend mynd (AÐSEND)