Samkvæmt Kauphallartilkynningu frá Högum er stefnumarkandi vinna að hefjast hjá Festi og Olís um skoðun á framtíðareignarhaldi innviðafélaganna Olíudreifingar ehf., Eldsneytisafgreiðslunnar á Keflavíkurflugvelli ehf. og EBK ehf.
Í tilkynningu segir að Festi og Olís, dótturfélag Haga, hafi sameiginlega ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka til ráðgjafar um stefnu og framtíðarmöguleika hvað varðar eignarhluti félaganna.
Olíudreifing er 60% í eigu Festi og 40% í eigu Olís. EAK er 33,3% í eigu Festi og 33,3% í eigu Olís. EBK er 25% í eigu Festi og 25% í eigu Olís.
„Félögin eru mikilvæg innviðafélög hvað varðar birgðahald og dreifingu á eldsneyti á Íslandi. Meginstarfsemi Olíudreifingar er birgðahald og dreifing á eldsneyti um land allt en meginstarfsemi EAK og EBK er birgðahald og dreifing á flugvélaeldsneyti á Keflavíkurflugvelli,“ segir í tilkynningunni.
Í verkefninu felst meðal annars að kanna möguleika á breyttu eignarhaldi, eftir atvikum í samvinnu við aðra hluthafa EAK og EBK, með það að markmiði að hámarka verðmæti hluthafa, einfalda eignarhaldið og um leið tryggja hagfellda framtíðarþróun innviða þeirra.