First Water hf., sem hét áður Landeldi, lauk í dag 13,7 milljarða króna fjármögnun. Félagið félagið tilkynnti í byrjun júlí uppbyggingu laxeldis á landi í Þorlákshöfn.
First Water tilkynnti fyrst um fjármögnunina í júní en tók þá fram að hluti fjárfesta væri með fyrirvara um samþykki stjórnar. Í dag lauk þeim hluta og fyrir liggur að fjárfestar komu í heild með samtals 13,7 milljarða króna í hlutafé eða um 94 milljónir evra miðað við gengi EUR/ISK í dag.
Í tilkynningu segir að fjárfestingarfélagið Stoðir verði áfram stærsti hluthafi First Water eftir hlutafjáraukninguna. Framtakssjóðurinn Horn IV ásamt breiðum hópi innlendra og erlendra fjárfesta á borð við lífeyrissjóði og einkafjárfesta koma þá nýir að félaginu. Það var fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem annaðist umsjón hlutafjáraukningarinnar.
„Við erum með frábært verkefni í höndunum og það endurspeglast í því að við erum að ljúka vel heppnaðri hlutafjáraukningu, þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður. Það er því full ástæða til bjartsýni og við höldum ótrauð áfram uppbyggingu umhverfisvæns og sjálfbærs laxeldis á landi,“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water.
Stefna að skráningu árið 2025
Með hlutafjáraukningunni er fjármögnun uppbyggingar fyrsta áfanga landeldisstöðvar First Water tryggð. Framleiðslugeta fyrsta áfanga verður um 8 þúsund tonn af laxi á ári en áætlanir félagsins miða við að heildarframleiðsla verði að lokum um 50 þúsund tonn og að uppbyggingu verði lokið árið 2028.
Áformað er að skrá First Water á hlutabréfamarkað 2025 og sækja samhliða skráningu aukið fjármagn til áframhaldandi uppbyggingar.