34,61% eignarhlutur fjárfestingafélagsins Stoða í landeldisfélaginu First Water var metinn á 9,8 milljarða í bókum félagsins um síðustu áramót, sem samsvarar um 28 milljarða króna hlutafjárvirði. Þetta kemur fram í bréfi Jóns Sigurðssonar, forstjóra Stoða, til hluthafa.

Þar kemur fram að verðmæti eignarhlutar í First Water hafi verið fært upp um 1,2 milljarða króna frá 9 mánaða uppgjöri Stoða sem samsvarar genginu 87,3. Um sé að ræða hækkun upp á 13,4% en mikill framgangur hafi verið á verkefninu á árinu. Einnig sé ljóst að áhætta í verkefninu minnkaði til muna eftir að hlutafjáraukning á síðasta ári kláraðist. Matið byggi á upphaflegri viðskiptaáætlun með verulegri varúð og ekki hafi verið tekið tillit til jákvæðra vísbendinga um að afköst í eldinu geti orðið umtalsvert meiri en upphaflega hafi verið gert ráð fyrir.

Þegar fullum afköstum hafi verið náð sé gert ráð fyrir að tekjur félagsins verði að lágmarki 400 milljónir evra á ári, eða sem nemur um 60 milljörðum króna, og EBITDA um 150 milljónir evra. Ef væntingar um aukinn vaxtahraða og meiri þéttleika í kerjum gangi eftir megi gera ráð fyrir tekjum og afkomu sem verði mun hærri en fyrrnefndar tölur.

„Árið 2023 var viðburðaríkt í rekstri First Water. Uppbygging félagsins hélt áfram af miklum krafti, hlutafjáraukning upp á rúmlega 13 milljarða króna var kláruð í lok sumars, aukið umhverfismat fékkst samþykkt og fyrsta uppskera félagsins var í maí, en rúmlega 370 tonn voru seld á árinu,“ skrifar Jón í bréfinu.

Til einföldunar megi skipta þessu risavaxna verkefni upp í þrennt: byggingarframkvæmdir, laxeldi og fjármögnun.

„Byggingaframkvæmdir ganga heilt yfir vel þó minniháttar töf hafi orðið. Heildarhönnun er lokið og mun framgangur fyrst og fremst stýrast af veðri og vindum. Þrátt fyrir að ekki sé búið að byggja upp allar stærðir af kerjum í fyrsta fasa þá hefur eldið gengið vonum framar. Ljóst er að vatnsgæði eru mjög góð, laxinn þrífst vel og vex hraðar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Vísbendingar eru um að svigrúm sé fyrir aukinn þéttleika í kerjum, sem gæti skilað meiri afköstum. Það má því gera ráð fyrir að heildarframleiðsla verði töluvert meiri en áður hefur verið kynnt.“

Væntingar standi til þess að áður en árið sé liðið verði First Water með yfir fimm kílógramma fisk sem hafi farið í gegnum allt eldisferlið við kjöraðstæður. Það verði mikilvægur áfangi hjá félaginu.

Fjármögnun hafi gengið vel og til marks um það hafi tekist að klára rúmlega 13 milljarða króna hlutafjáraukningu síðastliðið haust við mjög svo krefjandi markaðsaðstæður. Stoðir hafi skráð sig fyrir rúmlega þriðjungi af aukningunni sem sýni bæði áhuga og stuðning við verkefnið. Næst sé að afla frekari lánsfjármögnunar fyrir uppbyggingunni og á næsta ári sé ætlunin að sækja hlutafé í aðdraganda skráningar.

Jón bendir á að oft vilji gleymast hversu risavaxið verkefni sé hér um að ræða. Það séu ekki mörg framkvæmdaverkefni á Íslandi þar sem til standi að fjárfesta fyrir um 100 milljarða króna. Það sé vonandi að vel takist til og að áhrif félagsins á útflutningstekjur Íslands verði veruleg þegar fram líða stundir. Séu þá ótalin jákvæð áhrif á nærsamfélagið en First Water taki samfélagslegu hlutverki sínu alvarlega.

„Það er von okkar að First Water laxinn muni setja ný viðmið hvað varðar framleiðslu á umhverfisvænni og sjálfbærri vöru. Við teljum First Water einstakt fjárfestingarverkefni sem sameinar þá fjóra þætti þar sem Ísland hefur einna mestu hlutfallslegu yfirburði í heiminum, með nýtingu á hreinni orku, nýtingu á gnótt ferskvatns, aðgengi að hreinum sjó og þekkingu og þekktu orðspori sem gæða próteinframleiðandi,“ skrifar Jón að lokum.