Fjöldi bílaleigubíla í umferð hér á landi fór yfir 30 þúsund í ágúst síðastliðnum og hefur fjöldinn aldrei mælst hærri skv. tölum Hagstofunnar. Á fyrstu 9 mánuðum ársins var fjöldi bílaleigubíla í umferð að meðaltali 26 þúsund og hefur hann aldrei mælst hærri á sama tímabili. Næstmestur varð hann 2018 eða rúmlega 23 þúsund. Það ár var einmitt metár í komum erlendra ferðamanna en þá komu hingað til lands rúmlega 2,3 milljónir erlendra ferðamanna.
Fjöldi bílaleigubíla hefur aukist töluvert frá því í fyrra eða um ríflega fjórðung. Þakka má það auknum ferðamannafjölda en bílaleigur reiða sig þó ekki eingöngu á erlenda ferðamanna heldur bjóða þær einnig upp á langtímaleigu fyrir þá sem búsettir eru hérlendis.
Ferðamálastofa spáir metfjölda ferðamanna
Ferðamálastofa hefur spáð því að erlendir ferðamenn verði um 2,3-2,4 milljónir á þessu ári og því verði metárið 2018 mögulega slegið. A.m.k. verði metið slegið á næsta ári skv. spá Ferðamálastofu. Líklegt er því að bílaleigubílum muni fjölga enn frekar á næsta ári.
Stækkandi bílafloti hefur komið bílaumboðunum vel hér á landi en hagnaður þeirra tvöfaldaðist í fyrra miðað við sama ár í fyrra eins og sjá má í þessari frétt.