Heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins fyrir árið 2024 er áætlað 93 milljarðar sem er 4% aukning frá árinu 2023. Á vef Hagstofunnar segir að áætlað sé að 66% framleiðsluvirðisins telji til búfjárræktar en 25% til nytjaplönturæktar.

Gert er ráð fyrir að kostnaður við aðfanganotkun verði 61 milljarður króna árið 2024 sem er tæplega 3% aukning frá fyrra ári.

Í greiningu Hagstofunnar segir jafnframt að aðfanganotkun hafi verið stærsti útgjaldaliðurinn, eða 65% af heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins, sem er svipað og það var á fyrra ári.

„Árið 2023 var heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins metið 90 milljarðar króna. Virði afurða búfjárræktar, þ.e. framleiðsla dýra og dýraafurða, vegur þar langþyngst eða um 65% en virði afurða nytjaplönturæktar vegur um 27%. Tekjur af landbúnaðarþjónustu eru innan við 1% af heildarframleiðsluvirðinu og tekjur af óaðskiljanlegri aukastarfsemi eru tæp 8%.“

Heildaraðfanganotkun árið 2023 nam sömuleiðis 59 milljörðum króna sem er tæp 10% aukning frá fyrra ári.