Tæplega 60% af þeim 240 frambjóðendum, sem sitja í fimm efstu sætum á listum þeirra flokka sem sitja á þingi, eru annaðhvort stjórnmálamenn sem fá laun greidd frá hinu opinbera eða opinberir starfsmenn.

Þetta kemur fram í úttekt Viðskiptablaðsins á efstu sætum framboðslista stjórnmálaflokkanna.

Fjórðungur frambjóðenda kemur frá almenna markaðnum og átján prósent úr þriðja geiranum eða annars staðar frá.

Störfin eru flokkuð með eftirfarandi hætti:

  • Í fyrsta lagi almenni markaðurinn. Í þennan flokk voru þeir frambjóðendur sem starfa hjá einkafyrirtækjum, verktakar, sjálfstætt starfandi og bændur.
  • Í öðru lagi voru stjórnmálamenn teknir í sérflokk og auk sitjandi alþingismanna og þeirra sem hafa stjórnmál að ævistarfi voru sveitarstjórnarfulltrúar stærri sveitarfélaga settir í þennan flokk.
  • Þriðji hópurinn er opinberi geirinn og ekki þarf að orðlengja um hverjir eru í þeim flokki.
  • Í næsta hópi voru þeir sem starfa hjá hinum svokallaða þriðja geira settir en þar er um að ræða félagasamtök, hagsmunasamtök og íþróttahreyfinguna svo dæmi séu tekin.

Meirihlutinn stjórnmálamenn

Mjög svipaður bakgrunnur litar fimm efstu sætin á listum Framsóknar.

Tæplega fjórðungur frambjóðenda kemur frá almenna markaðnum og 67% þeirra eru stjórnmálamenn eða opinberir starfsmenn.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild hér.