Frigus ehf. hefur áfrýjað til Landsréttar sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 17. mars í máli félagsins gegn Lindarhvoli ehf. og íslenska ríkinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Frigus.

Frigus II, sem er í eigu Sigurðar Valtýssonar, og Ágústs og Lýðs Guðmundssona, kenndir við Bakkavör, stefndi Lindarhvoli og íslenska ríkinu í september árið 2020 og fór fram á 651 milljón króna í bætur. Félagið taldi m.a. að tilboð hafa verið tekið sem ekki uppfyllti skilyrði útboðsins og að tilboðinu hefði verið breytt eftir á.

Forsvarsmenn Frigusar telja að alvarlegir annmarkar hafi verið á söluferli Lindarhvols ehf. á hlutafé og nauðsamningskröfu í Klakka ehf. í október 2016. Þetta hafi komið berlega í ljós við aðalmeðferð málsins í héraðsdómi þegar skýrslutökur fóru fram.

„Forsvarsmönnum Frigusar þykir miður að héraðsdómur hafi ekki tekið tillit til sjónarmiða og röksemda félagsins er að þessu lúta. Að mati Frigusar er nauðsynlegt að Landsréttur leysi úr málinu, meðal annars í ljósi mikilvægis þess og fordæmisgildis enda liggur fyrir að stjórn og ráðgjafar Lindarhvols ehf. höfðu með höndum sölu á afar verðmætum ríkiseignum,“ segir í tilkynningunni.

Þeir segja að enn gæti „undarlegrar tregðu“ hjá forseta Alþingis og stjórnvöldum, þar með talið ríkisendurskoðanda, við að afhenda greinargerð Sigurðar Þórðarsonar, setts ríkisendurskoðanda, um starfsemi Lindarhvols ehf.

„Þar kunna að vera upplýsingar sem styrktu málstað Frigusar ehf. fyrir dómi. Vegna alls þessa telja forsvarsmenn félagsins óhjákvæmilegt annað en að fá úrlausn æðra dómsvalds í málinu.“