Prima fasteignasala hefur tekið til starfa en hún er staðsett við Suðurlandsbraut 6 í Reykjavík. Eigendur eru allir fyrrum starfsmenn fasteignasölunnar Domusnova og hafa mikla reynslu í sölu fasteigna.
Óskar Már Alfreðsson, sem er betur þekktur undir viðurnefninu „El Normale“, er einn af eigendum Prima en hann hætti sjálfur hjá Domunsnova árið 2022.
„Þetta er bara gamla bandið úr Domusnova aftur komið saman. Við erum fjórir eigendur og kynntumst allir hjá Domusnova fyrir rúmlega tíu árum síðan. Svo síðan seldi ég mig út úr því félagi þá hafa þeir verið að væla í að fá að vinna með kónginum aftur.“
Það eru þegar komnar 30 eignir inn og 50 á leiðinni. Við vorum allir að vinna hver á sínum stað og byrjuðum svo bara að selja eignir um leið og við kveiktum á tölvunum hérna.
Óskar segist vera með reynslugott teymi í liði með sér en eftir níu ára rekstur nær hann að sjá hverjir eru í landsliðsklassa og hverjir eru meðal. Hann bætir við að allt þurfi að vera í lagi þegar verið er að stunda viðskipti með aleigu fólks.
„Þetta var bara þannig hérna áður fyrr að bílasalarnir fóru í þetta þangað til þetta varð að háskólanámi, þá losnuðu þeir úr geiranum. Bílasalar eru náttúrulega frábærir í sínum geira en það ætlaði bara hver sem er að fara í þennan bransa og meika það.“