Tveir stærstu hluthafar flugfélagsins Play, Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, og Elías Skúli Skúlason, varaformaður stjórnar Play, hafa gert yfirtökutilboð í allt hlutafé félagsins og stefna á afskráningu félagsins úr Kauphöll Íslands.

Yfirtökutilboðið hljóðar upp á eina krónu á hlut en hluthafar geta valið að fá annaðhvort greitt í formi hlutar í nýju félagi eða reiðufjár. Dagslokagengi Play í dag var 0,81 króna á hlut og er því markaðsvirði félagsins 1,5 milljarðar króna.

Virði félagsins í yfirtökutilboðinu, miðað við 1 krónu á hlut, er tæplega 1,9 milljarðar.

Yfirtökutilboðið verður fjármagnað með að lágmarki 20 milljóna dala fjárframlagi, sem samsvarar um 2,5 milljörðum króna, en af þeirri fjárhæð er þegar skuldbinding fyrir rúmlega þriðjungi fjárhæðarinnar.

Skila inn íslenska flugrekstrarleyfinu

Sam­kvæmt frétta­til­kynningunni frá Play ætla Einar og Skúli að stuðla áfram að sam­keppni á ís­lenskum flug­markaði, neyt­endum til góða, undir merkjum Play með því að bjóða hag­kvæm flug­far­gjöld fyrir Ís­lendinga og ferða­menn.

„Í stuttu máli munu farþegar frá Íslandi ekki finna fyrir breytingum á þjónustu félagsins. Yfirbragð og ásýnd félagsins og flugvéla verða óbreytt. Farþegaþoturnar verða ennþá rauðar, áhafnir verða frá Íslandi og starfa eftir íslenskum kjarasamningum. ,“ segir í til­kynningunni.

Félagið mun áfram ein­blína á að bjóða upp á fram­boð til sólar­landastaða frá Ís­landi. Flug til Norður-Ameríku verði hins vegar hætt frá og með október 2025.

Borgará­fangastöðum í Norður-Evrópu mun einnig fækka. Flogið verður undir malt­nesku flug­rekstrar­leyfi og ís­lenska flug­rekstrar­leyfinu verður skilað.

Fjórar flug­vélar munu sinna flugi til og frá Ís­landi, einkum til sólar­landa. Hinar sex vélarnar verða leigðar í arðbær verk­efni til annarra flug­rek­enda.

Sam­kvæmt til­kynningu verður lögð aukin áhersla á skrif­stofur félagsins í Möltu og Lit­háen.

„Hér er fyrst og fremst um að ræða áform um praktískar breytingar á starfsemi íslenska flugfélagsins Play. Með þeim leggjum við áherslu á arðbæra þætti rekstursins, það er sólarlandaflug, og hættum þeim hluta rekstursins sem hefur ekki skilað árangri. Við hlökkum til að halda áfram að stuðla að samkeppni á flugmarkaði í rauðu vélunum, með íslenskum áhöfnum. Meginmarkmið okkar er nú sem fyrr að bjóða Íslendingum hagkvæm flugfarfargjöld í sólina,“ segir Einar Örn Ólafsson, fjárfestir og forstjóri Play í tilkynningunni.

Einar og Skúli með 19% hlut

Félög tengd Einari Erni, Leika fjár­festingar ehf., Einir ehf. og Gnita­nes ehf. eru saman­lagt stærsti hlut­hafi Play með 10,83% hlut.

Birta líf­eyris­sjóður er stærsti ein­staki hlut­hafinn í flug­félaginu með 10,35% hlut. Líf­eyris­sjóðurinn á rúm­lega 195 milljón hluti.

Fea ehf., sem er alfarið í eigu Skúla Skúla­sonar, er næst­stærsti ein­staki hlut­hafi Play með 124,9 milljónir hluta, eða um 6,6%.

Skúli á einnig 26,13% hlut í Rea ehf., sem fer með 1,76% hlut í Play. Þessi tvö félög tengd Skúla fara því með um 8,36% hluti í Play en Skúli hefur einnig keypt bréf í eigin nafni.

Markaðsvirði Play miðað við dagsloka­gengi föstu­dagsins var 1,5 milljarðar króna. Sé tekið mið af til­boðs­genginu er virði félagsins tæpir 1,9 milljarðar króna.

Áskoranir í rekstri Play

Play tapaði 66 milljónum dala á liðnu ári, sem nemur ríf­lega 9,1 milljarði króna. Til saman­burðar tapaði félagið um 35 milljónum dala árið áður, sem nemur 4,8 milljörðum króna. Hefur félagið í heildina tapað 171,4 milljónum dala frá stofnun þess, sem nemur 23,3 milljörðum króna.

Tekju­vöxtur félagsins hefur þó verið mikill í takt við aukin um­svif. Tekjur Play á síðasta ári námu 292 milljónum dala, sem nemur 40,3 milljörðum króna. Tekjurnar jukust um 3,7% milli ára en hafa meira en tvöfaldast frá fyrsta heila starfsári flug­félagsins árið 2022.

Rúm­lega 1,6 milljónir farþega flugu með félaginu á árinu 2024 og nemur tap félagsins af hverjum farþega 5.525 krónum.

Heildar­tap Play á árinu var tvöfalt hærra en rekstrar­tapið (EBIT), m.a. vegna niðurfærslu á yfir­færan­legu skatta­legu tapi upp á 24,1 milljón dala. Þannig nam rekstrar­tap Play af hverjum farþega 2.556 krónum.

Hans Jørgen Elnæs, norskur greinandi og ráðgjafi á flug­markaði, sagði í sam­tali við Við­skipta­blaðið í vor að helsta áskorun Play sé að eininga­kostnaður (CASK) sé enn þá tals­vert meiri en eininga­tekjur (RASK). Þetta þyrfti að breytast í ár til að félagið skili hagnaði eða a.m.k. minnki tapið milli ára.

Eininga­tekjur Play lækkuðu á milli ára, voru 4,9 Bandaríkja­sent, borið saman við 5 sent árið 2023. Eininga­kostnaður á árinu 2024 var 5,6 Bandaríkja­sent og stóð í stað frá fyrra ári.

Þá jókst eininga­kostnaður án elds­neytis milli ára, var 4 sent saman­borið við 3,8 sent árið á undan.

Í frétta­til­kynningu sem fylgdi árs­reikningi Play segir m.a. að stefnt sé að því að skila 15-20% hag­ræðingu í yfir­byggingu á yfir­standandi ári.

Play tapaði 26,8 milljónum dala á fyrsta árs­fjórðungi, eða sem nemur 3,7 milljörðum króna miðað við meðal­gengi krónunnar á tíma­bilinu. Til saman­burðar tapaði flug­félagið 27,2 milljónum dala á sama tíma­bili í fyrra.

Tekjur Play á fjórðungnum námu 46,4 milljónum dala, eða um 6,4 milljörðum króna, saman­borið við 54,4 milljónir dala á sama tíma­bili í fyrra. Sam­dráttinn má rekja til þess að dregið var úr fram­boði og flugáætlun löguð betur að ár­stíða­bundinni eftir­spurn.

Tekjur á hvern fram­boðinn sætiskíló­metra (RASK) á fyrsta árs­fjórðungi 2025 voru 4,10 sent, saman­borið við 4,24 sent á sama tíma 2024. Meðal­tekjur á hvern farþega hækkuðu um 1,2%.

Hand­bært fé Play jókst á milli ára, úr 17,2 milljónum dala í lok mars 2024 í 21,1 milljón dala í lok fyrsta árs­fjórðungs þessa árs.

„Lausa­fjár­staðan er sterkari saman­borið við fyrra ár, sem endur­speglar betri rekstrar­horfur. Félagið leitar ávallt leiða til að tryggja lausa­fjár­stöðu félagsins sem best, meðal annars með hag­ræðingu á veltu­fé en ef markaðsaðstæður breytast kemur til greina að auka hluta­fé í félaginu eða dóttur­félagi þess,“ sagði í upp­gjörstil­kynn­ingu fé­lags­ins.

Eignir Play námu 363 milljónum dala, eða tæp­lega 48 milljörðum króna, í lok mars sl. Eigið fé flug­félagsins var neikvætt um 60,4 milljónir dala eða um 8 milljarða króna.