Skráðar gistinætur í maí voru um 611.000 samkvæmt tölum Hagstofunnar sem er um 15% minna en í maí í fyrra þegar þær voru 720.000. Fjöldi gistinátta á hótelum var þá 385.800 sem er jafnframt 7,1% minna en í maí 2023.

Þá voru gistinætur erlendra ferðamanna í maí um 78% gistinátta, eða um 478.000, sem er 18% fækkun frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga voru um 134.000 sem er 1% minna en í maí í fyrra.

Gistinætur á hótelum í maí voru 7,1% færri en í fyrra og var þá töluverður samdráttur í hótelgistingu í öllum landshlutum. Samdrátturinn var hlutfallslega mestur á Austurlandi (-24%) og Suðurnesjum (-18%). Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum á hótelum í maí um 5,2% á milli ára.

Framboð hótelherbergja í maí jókst um 2,7% miðað við maí 2023. Á sama tíma dróst herbergjanýting á landinu saman um 6,9 prósentustig. Herbergjanýting dróst saman í öllum landshlutum, mest á Austurlandi (-14,3) og Suðurlandi (-9,5).

Áætlað er að óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna í heimagistingu í maí hafi verið um 92.000 í gegnum vefsíður sem miðla heimagistingu og um 14.000 hjá vinum og ættingjum en að fjöldi gistinátta erlendra ferðamanna í húsbílum hafi verið um 4.000.