Glans opnaði nýja, sjálfvirka bílaþvottastöð hjá Olís á Selfossi sl. föstudag og er önnur Glans-stöðin sem Olís tekur í notkun en fyrr á þessu ári var opnuð sjálfvirk stöð hjá Olís við Langatanga í Mosfellsbæ.
Opnunarhátíð var haldin við þvottastöðina á Selfossi á laugardaginn en þar mættu Ingunn Svala Leifsdóttir forstjóri Olís og Sveinn Ægir Birgisson, formaður bæjarráðs Árborgar, til að klippa á borða.
„Við erum ótrúlega ánægð að hafa opnað hér þessa glæsilegu bílaþvottastöð og óskum Selfyssingum og öðrum íbúum Árborgar til hamingju með Glans. Þessi stöð er annar áfangi þeirrar vegferðar sem við erum á með Glans og innan skamms munum við einnig opna þvottastöðvar á Olís við Gullinbrú og á Akureyri,“ segir Ingunn Svala.
Samkvæmt tilkynningu var gestum og gangandi boðið upp á kaffi, kökusneið og nýjan íspinna frá Olís á meðan Magnús Kjartan, söngvari Stuðlabandsins, tók nokkur lög.