Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum og eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk, samkvæmt yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands í morgun.
Aðgengi KMB að fjármögnun er einnig gott að mati nefndarinnar.
„Lítið ber enn á vanskilum þrátt fyrir hátt vaxtastig. Vert er þó að hafa í huga að þrálát verðbólga samhliða hægari vexti efnahagsumsvifa mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið á næstu misserum. Umsvif á fasteignamarkaði hafa aukist. Fólksfjölgun, tekjuvöxtur og afleiðingar eldsumbrota hafa ýtt undir eftirspurn. Að sama skapi er töluverður vöxtur í útlánum til byggingarfyrirtækja og fasteignafélaga auk þess sem vinnuafl í byggingariðnaði hefur farið vaxandi,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.
„Teikn á lofti um að tekið sé að hægja á“
Nefndin bendir á að skuldahlutföll einkageirans hafa lækkað síðustu misseri og eru lág í sögulegu samhengi.
Þá hefur eiginfjárstaða heimila með fasteignalán haldið áfram að styrkjast en greiðslubyrði lánþega hefur þyngst og hækkun raunvaxta þrengt að ráðstöfunartekjum heimila og rekstrarumhverfi fyrirtækja.
„Útlit er fyrir að þessara áhrifa gæti enn frekar á næstu misserum. Á móti vegur að eiginfjárstaða heimila og fyrirtækja í flestum atvinnugreinum er sterk. Teikn eru á lofti um að tekið sé að hægja á efnahagslífinu samhliða hækkun raunvaxta. Þyngri greiðslubyrði lána ásamt hægari vexti efnahagsumsvifa eykur líkur á greiðsluerfiðleikum,“ segir í yfirlýsingunni.
Fjármálastöðugleikanefnd ákvað á fundi sínum að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5% til að viðhalda viðnámsþrótti bankanna.
Að mati nefndarinnar er sterk eiginfjárstöðu mikilvæg við ríkjandi aðstæður og áréttar nefndin mikilvægi rekstraröryggis í greiðslumiðlun.
„Huga þarf heildstætt að viðnámsþrótti greiðslumiðlunar, m.a. með samhæfingu viðbragða á fjármálamarkaði vegna rekstraratvika, viðbúnaðaræfingum og netöryggisprófunum. Fjármálastöðugleikanefnd lítur svo á að samþykkt frumvarps um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands hvað varðar rekstraröryggi í greiðslumiðlun sem nú liggur fyrir Alþingi muni efla öryggi og styrkja viðnámsþrótt.“
Að lokum segir í yfirlýsingunni að nefndin muni áfram beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.