Hlutfall þeirra sem greiða reikninga fyrir lok eindaga virðist hafa náð jafnvægi eftir að hafa verið á samfelldri niðurleið frá því sumarið 2022.

Þetta kemur fram í tölum greiðslu- og innheimtufyrirtækisins Inkasso-Momentum yfir svokallaðan greiðsluhraða krafna, sem mælir áðurnefnt hlutfall næstliðna 12 mánuði.

Félagið segir greiðsluhraðann gefa innsýn í getu einstaklinga og fyrirtækja til að standa við skuldbindingar sínar og umfang lausafjár í hagkerfinu. Þannig sé fallandi greiðsluhraði almennt til marks um að fjárhagsstaða einstaklinga og fyrirtækja fari versnandi, en ýmsar ástæður geti þó legið að baki breytingum á hlutfallinu.

Eftir hóflega lækkun á um árstímabili í aðdraganda og upphafi heimsfaraldursins hafi sá samdráttur umsvifa sem hann olli sem dæmi haft mikil áhrif til hækkunar hlutfallsins, sem hækkaði verulega frá haustinu 2020 fram á mitt ár 2022. Vaxandi verðbólga og hækkandi vextir hafi síðan verið ráðandi áhrifaþáttur í þeim viðsnúningi og lækkun sem við tók þegar faraldurinn var liðinn hjá.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina hér.