Íshellan við heimskautasvæði Kanada hefur minnkað gríðarlega á árinu. Fljótandi íshella hefur umlukið svæðið í kringum Ellesmere eyju öldum saman en nú hefur um það bil fjórðungur hennar brotnað upp.
Nýverið braut svokölluð Markham-hella sig lausa og flýtur hún nú út á reginhaf. Hellan er 50 ferkólómetrar að stærð.
BBC hefur eftir vísindamönnum að lofthiti á svæðinu hafi aukist til muna. Það er ein helsta ástæða þessara hröðu breytinga.
Bráðnun íshellna á norðurhveli jarðar hefur bæði í för með sér góðar og slæmar fréttir. Það góða er að nýjar siglingaleiðir opnast sem og ný olíuleitarsvæði. Það slæma er m.a. það að ef ísinn bráðnar minnkar endurkast geisla sólarinnar en ísinn gegnir mikilvægu hlutverki í að halda hitastigi jarðar í jafnvægi.