Gróðurhúsið er nýr áfangastaður sem hefur opnað í Hveragerði. Fjölbreytt starfsemi er í byggingunni sem höfðar bæði til Íslendinga og erlendra ferðamanna en þar er að finna hótel, mathöll, bar, verslanir, kaffihús, matarmarkað og ísbúð.
„Við uppbyggingu hefur sjálfbærni verið höfð að leiðarljósi og nafnið því vel við hæfi enda Hveragerði þekkt fyrir sín fjölmörgu gróðurhús. Markmiðið er að að gestir geti staldrað við í fallegu umhverfi og notið alls þess sem Gróðurhúsið hefur uppá að bjóða,“ segir í tilkynningu um opnunina. Hálfdan Pedersen sér um heildarhönnun og útlit Gróðurhússins en samvinna er með Flóru garðyrkjustöð um ráðgjöf varðandi gróður hússins.
„Í suðurenda byggingarinnar er mathöllin með fimm veitingastöðum; Hipstur, Yuzu burgers, Wok-on, Taco vagninn og Pönk Fried Chicken (PFC). Í glerskálanum til suðurs er svo Nýlendubar Kormáks og Skjaldar en þar er hægt að skála undir pálmatré. Barinn nær einnig til setustofu annarrar hæðar og þaksvala með útsýni til suðurs.
Í norðurenda byggingarinnar hafa gamalgróin vörumerki úr höfuðborginni komið sér fyrir s.s. Epal, Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar og Álafoss. Einnig er þar starfrækt ný sælkeraverslun og matarmarkaður sem ber nafnið Me&Mu en þar er áherslan á smáframleiðendur og vörur beint úr héraði. Ísbúðin Bongo býður einnig uppá nýja og skemmtilega nálgun í samvinnu við Kjörís. Kaffihúsið býður svo uppá morgunverð og léttar veitingar ásamt Macai skálum. Samstarf er við Te&Kaffi um kaffidrykki í kaffihúsinu og á herbergjum hótelsins.“
The Greenhouse Hotel er síðan staðsett á efri hæðum byggingarinnar og hafa hótelgestir aðgang að norðursvölum en þar mun einnig opna spa svæði. „Lagt er upp með að gestir geti náð í alla sína þjónustu sem þeir þurfa innan Gróðurhússins og geta gestir notið útivistar í bakgarðinum í Reykjadal, en þar er heiti lækurinn og Hengillinn meðal áningastaða. Það er síðan margt í boði í nágrenninu og vinnur Gróðurhúsið náið með ferðaþjónustuaðilum í nærumhverfi sínu.“