Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,18% í október, samanborið við 0,28% lækkun í september. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 8,7%, en hún mælist 9,5% í september.

„Íbúðaverð heldur áfram að hækka umfram verðlag á landinu öllu, en ekki eins mikið og í ágúst og september. Raunverðshækkun vísitölu íbúðaverðs á ársgrundvelli nam 3,5 prósentum í október en til samanburðar var tólf mánaða hækkun íbúðaverðs um 4,5 prósent að raunvirði í ágúst og 3,9 prósent að raunvirði í september,“ segir í frétt á vef HMS.

„Árstaktur íbúðaverðs hefur verið umfram verðbólgu sjöunda mánuðinn í röð, í kjölfar 13 mánaða raunverðslækkunarskeiðs sem hófst í mars 2023.“

HMS gefur út fjórar undirvísitölur yfir verð á fjölbýli og sérbýli á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar.

Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,3% milli mánaða og hefur nú hækkað um 8,5% á síðustu tólf mánuðum. Í október hækkaði sérbýli á höfuðborgarsvæðinu um 0,1% milli mánaða og hefur nú hækkað um 8,8 % á síðustu tólf mánuðum.

Undirvísitala yfir fjölbýli á landsbyggðinni lækkaði um 0,1% milli mánaða og hefur hækkað um 8,6% á síðustu tólf mánuðum. Sérbýli á landsbyggðinni hækkaði um 0,2% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 9,0% á ársgrundvelli.