Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynnti í dag fyrstu aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda um gervigreind til ársins 2026.

Samkvæmt fréttatilkynningu stjórnarráðsins er þar að finna aðgerðir sem stuðla að því að Ísland, í krafti smæðar sinnar, verði leiðandi í ábyrgri nýtingu gervigreindar og skapar tækifæri, velmegun og framfarir fyrir alla landsmenn.

Í greiningu á efnahagslegum tækifærum gervigreindar á Íslandi kemur fram að um 55% starfa á Íslandi, eða um 130 þúsund manns, eru talin líkleg til að verða fyrir miklum áhrifum af gervigreind en alls verða um 75% starfa fyrir einhverjum áhrifum.

Ráðuneytið bendir á að alþjóðlegar greiningar hafi jafnframt sýnt að opinberir starfsmenn verji að meðaltali 30% vinnutímans í verkefni sem mætti sjálfvirknivæða með aðstoð gervigreindar.

„Með því að nýta sér gervigreind getur starfsfólk, jafnt hjá hinu opinbera og í einkageiranum, forgangsraðað tíma sínum með öðrum hætti og aukið afköst sín um leið,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Aðgerðaáætlunin byggir á fimm grunnstoðum. Fyrstu þrjár stoðirnar, þ.e. gervigreind í allra þágu, samkeppnishæft atvinnulíf og menntun í takt við tímann, byggja á stefnu Íslands um gervigreind frá árinu 2021.

Við undirbúning nýju aðgerðaáætlunarinnar var bætt tveimur nýjum stoðum við: notkun gervigreindar hjá hinu opinbera og innleiðing gervigreindar í heilbrigðiskerfinu.

„Gervigreind er ekki fjarlæg framtíð heldur nýtist hún okkur nú þegar til að bæta verulega árangurinn af störfum okkar og mér finnst mikilvægt að nota þessi tímamót til að hvetja alla sem ekki eru farnir að nýta sér einhver gervigreindartól til að gera það nú þegar. Veruleikinn er sá að gervigreind er að breyta um 75% allra starfa og samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavettvangi mun að miklu leyti ráðast af því hversu vel okkur tekst að tileinka okkur og nýta gervigreind. Til að ná settu marki munum við leggja sérstaka áherslu á uppbyggingu þekkingar í gegnum menntakerfið, þróun öflugra stafrænna innviða og mótun skýrrar lagaumgjarðar. Þannig getur Ísland komist í fremstu röð í nýtingu gervigreindar með ábyrgð og siðferðisleg sjónarmið að leiðarljósi,“ segir Áslaug Arna.

Samkvæmt ráðuneytinu mun árangur Íslands á þessu sviði ráðast af tveimur þáttum: annars vegar hversu öflug gervigreind verður og hins vegar hversu fljót almenn upptaka hennar verður á Íslandi.

Í greiningunni eru teiknaðar upp fjórar sviðsmyndir sem sýna að verg landsframleiðsla á Íslandi gæti aukist um 0,8 til 6% árlega fram til ársins 2029, allt eftir því hvernig Íslandi mun farnast í þessum tveimur þáttum. Samanlagt jafngildir það 174 til 1450 milljörðum króna.

„Ávinningurinn af gervigreind nær þó langt út fyrir hefðbundna efnahagslega mælikvarða. Í opinberri þjónustu opnar hún möguleika á að efla skilvirkni stjórnsýslunnar og stuðla að persónumiðaðri þjónustu við hinn almenna borgara. Í heilbrigðiskerfinu getur hún orðið til þess að bæta sjúkdómsgreiningar og gera meðferðir markvissari. Í menntakerfinu opnar hún nýjar leiðir til einstaklingsmiðaðs náms og símenntunar. Þessi áhrif munu teygja sig inn í alla króka og kima samfélagsins og skapa grundvöll fyrir aukna velsæld og bætt lífsgæði allra landsmanna,“ segir Áslaug Arna.