Hæstiréttur Brasilíu hefur staðfest bannið sem sett var á samfélagsmiðilinn X í landinu um helgina. Allir hæstaréttardómarar kusu með banninu en málið hefur klofið samfélagið í Brasilíu.
Alexandre de Moraes hæstaréttardómari hafði kallað eftir atkvæðagreiðslunni og sagði einn af dómurunum, Flávio Dino, að tjáningarfrelsi væri nátengt ábyrgðarskyldu.
Elon Musk, eigandi X, brást við ákvörðuninni og sagði að málfrelsi væri grunnur lýðræðis og að ókosinn gervidómari í Brasilíu væri að eyðileggja það í pólitískum tilgangi.
Samfélagsmiðillinn lokaði skrifstofu sinni í Brasilíu í síðasta mánuði og sagði að fulltrúa þess hefði verið hótað handtöku ef hún yrði ekki við skipunum yfirvalda.
Deilur milli Moraes og Musk hófust í apríl þegar dómarinn fyrirskipaði að loka fyrir tugi reikninga vegna meintrar útbreiðslu rangra upplýsinga. Fyrirtæki á borð við Apple og Google hafa nú örfáa daga til að fjarlægja X úr appverslunum sínum og loka fyrir notkun þess á stýrikerfum sínum.