Ríflega 350 milljón króna hagnaður var af rekstri byggingarfélagsins Eyktar í fyrra. Rekstrartekjur námu 15 milljörðum á árinu og hækkuðu um 77% milli ára.

Eigið fé félagsins nam einum milljarði við árslok og námu heildeignir félagsins 3,5 milljörðum króna.

Fram kemur í ársreikningi að stærstu verkefni félagsins í fyrra voru vegna framkvæmda við nýtt þjóðarsjúkrahús við Hringbraut uppbygging á skrifstofuhúsnæði við Dalveg 30 og uppbygging vistvænna íbúða í Gufunesi og Grafarholti.

Lykiltölur/ Eykt ehf – í milljónum króna

2022 2021
Tekjur 15.006 8.463
Eignir 3.545 2.807
Eigið fé 1.022 700
Hagnaður 352 82