Nói Síríus, stærsta sælgætisgerðarfélag landsins, hagnaðist um 246 milljónir króna árið 2024 samanborið við 76 milljóna hagnað árið áður.

Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur arður til hluthafa á árinu 2025, að því er segir í ársreikningi félagsins.

Sölutekjur Nóa Síríus námu 5,3 milljörðum króna og jukust um 6,4% milli ára. EBITDA-hagnaður félagsins fór úr 486 milljónum í 636 milljónir milli ára.

„Áætlanir ársins varðandi magn- og veltu aukningu gengu að mestu eftir þar sem eftirspurn og tekjur jukust. Á sama tíma greiddi félagið niður skuldir og engar nýjar lántökur voru á tímabilinu. Horfur til framtíðar eru almennt góðar og er félagið bjartsýnt á að áætlanir næsta árs gangi eftir,“ segir í skýrslu stjórnar.

Eignir sælgætisgerðarinnar voru bókfærðar á 4,7 milljarða króna í árslok 2024 og eigið fé var um 2,6 milljarðar. Nói Síríus er í eigu norsku matvælasamstæðunnar Orkla.