Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Mun þetta vera í þriðja sinn í röð þar sem nefndin kemur saman og ákveður að halda vöxtum óbreyttum.
Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25%.
„Áhrif peningastefnunnar koma æ skýrar fram. Raunvextir hafa hækkað og verðbólga hjaðnað nokkuð frá nóvemberfundi nefndarinnar. Undirliggjandi verðbólga hefur einnig minnkað. Vísbendingar eru um að hraðar dragi úr vexti efnahagsumsvifa en áður var talið. Samkvæmt nýrri spá Seðlabankans fer spennan í þjóðarbúinu minnkandi og snýst í slaka undir lok ársins. Verðbólguhorfur hafa því batnað,“ segir í tilkynningu nefndarinnar í morgun.
Verðbólga á ársgrundvelli mældist 6,7% í janúar eftir að vísitala neysluverðs lækkaði um 0,16% milli mánaða. Ársverðbólga lækkaði því um heilt prósent milli mánaða en janúarútsölur og lægri flugfargjöld höfðu mikil áhrif í mánuðinum.
„Langtímaverðbólguvæntingar hafa þó lítið breyst og haldist nokkuð yfir markmiði. Þótt hægt hafi á vinnumarkaði er spenna þar enn til staðar. Verðbólga gæti því áfram reynst þrálát. Þá er einnig óvissa um niðurstöður kjarasamninga og mögulegar aðgerðir í ríkisfjármálum tengdar þeim og vegna jarðhræringa á Reykjanesi,“ segir þar enn fremur.
Bætir nefndin við að mótun peningastefnunnar á næstunni mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands mun gera grein fyrir ákvörðun sinni í beinni kl. 9:30. Hægt verður að fylgjast með á vef Viðskiptablaðsins.
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns, og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, verða á fundinum og kynna einnig efni peningamála.