Hamarshylur ehf. hefur samið við Já hf. um kaup á öllu hlutafé Gallup á Íslandi. Þegar kaupin hafa gengið í gegn verður Gallup á Íslandi rekið sem sjálfstætt rannsóknarfyrirtæki og mun ný stjórn auglýsa eftir nýjum framkvæmdastjóra.
Í tilkynningu segir að markmið Hamarshyls með kaupunum sé að efla fyrirtækið sem sjálfstætt rannsóknarfyrirtæki sem sér almenningi, stofnunum og fyrirtækjum fyrir áreiðanlegum og traustum upplýsingum um stöðu og þróun íslensks samfélags og markaða.
„Gallup á Íslandi er framúrskarandi rannsóknarfyrirtæki sem hefur á undanförnum áratugum verið leiðandi í því að safna gögnum um stöðuga þróun samfélagsins og miðla þeim með aðgengilegum hætti,“ segir Huginn Freyr Þorsteinsson, stjórnarformaður Hamarshyls.
Hamarshylur ehf. er í eigu Dr. Hugins Freys Þorsteinssonar, Valdimars Halldórssonar, Agnars Lemacks og Ingvars Sverrissonar og var stofnað um kaupin á Gallup. Arctica Finance var ráðgjafi í söluferlinu og Ax Lögmannsþjónusta ráðgjafi kaupanda.
Vilborg Helga Harðardóttir, forstjóri Já hf., er einnig framkvæmdastjóri Gallup á Íslandi og mun sinna því starfi áfram þar til gengið hefur verið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra.
„Viðræður um söluna hafa staðið yfir í nokkurn tíma og því ánægjulegt að við höfum nú náð þessari góðu niðurstöðu fyrir bæði Já og Gallup á Íslandi. Það verður spennandi að fylgjast með nýjum eigendum efla og styrkja enn frekar starfsemi Gallup ásamt því einstaka starfsfólki sem þar starfar“, segir Vilborg.